
Slippurinn Akureyri ehf
Um vinnustaðinn
Slippurinn Akureyri ehf. veitir alhliða þjónustu við sjávarútveginn og teljast helstu útgerðir á Íslandi til viðskiptavina fyrirtækisins, einnig hefur Slippnum orðið ágengt á erlendum markaði upp á síðakastið. Aðrir viðskiptavinir eru stóriðjur, virkjanir og ýmsar verksmiðjur. Slippurinn Akureyri ehf. er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði hér á landi. Það rekur upptökumannvirki og viðgerðarstöð fyrir skip og annast hvers konar málmsmíði, vélsmíði, vélaviðgerðir, rennismíði og skipasmíðar. Fyrirtækið rekur ennfremur trésmíðaverkstæði, sand/vatnsblástur, málun og verslun með eigin framleiðslu og aðrar vörur til skipa. Skipaþjónusta Slippsins Akureyri annast þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki og býður heildarlausnir í hönnun, endurnýjun og viðhaldi á skipum og búnaði þeirra. Þá færast svonefnd landverkefni stöðugt í aukana hjá fyrirtækinu. Starfsmenn Slippsins Akureyri eru um 160 talsins. Í þeim hópi eru m.a. rennismiðir, stálsmiðir, trésmiðir, tækjamenn, verkamenn og vélvirkjar. Helstu þættir í skipaþjónustu Slippsins Akureyri eru slipptökur, þvottur og málun, vélaupptökur, skrúfuviðgerðir, stálviðgerðir og ryðfrí smíði auk innréttingasmíði og hvers konar viðhalds á tréskipum. Ef sérfræðingarnir finnast ekki innan okkar vébanda köllum við til einhver af okkur frábæru samstarfsfyrirtækjum, því við leggjum mikið upp úr slagorðinu gamla og góða, sem einhver smíðaði um árið: ”Allt á einum stað!” Viðskiptavinurinn á ekki að þurfa að leita lengra en til okkar því við bjóðum heildarlausn á þeim verkefnum sem við blasa hverju sinni.

Tækjaforritari, Automation Engineer/PLC forritari
Slippurinn Akureyri leitar að metnaðarfullum forritara sem vill taka þátt í að þróa og hanna hugbúnað fyrir fiskvinnslu – bæði á landi og á sjó.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun hugbúnaðar fyrir sjálfvirkni og stýringu matvælavinnslukerfa
- PLC/iðntölvu forritun
- Uppsetning og þróun HMI viðmóta
- Hönnun og þróun notendavænna viðmóta
- Viðhald og endurbætur á núverandi kerfum
- Prófanir og innleiðing nýrra lausna
- Greining og lausn tæknilegra vandamála
- Samskipti við viðskiptavini og þarfagreining
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg reynsla
- Reynsla og kunnátta í PLC forritun, C/C++ og Structured Text
- Áhugi á iðnaði, sjálfvirkni og/eða sjávarútvegi (kostur)
- Færni í bilanagreiningu og lausnamiðaðri hugsun
- Lausnamiðuð hugsun og hæfni til teymisvinnu
- Góð enskukunnátta
Utworzono ofertę pracy15. May 2026
Termin nadsyłania podań31. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Naustatangi 2, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
Rozwiązywanie problemówCC++InicjatywaTestowanie oprogramowaniaInterakcje międzyludzkieInterfejs użytkownikaProgramowanie PLCSamodzielność w pracyInformatykProgramowanie maszyn
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (2)
Podobne oferty pracy (12)

Senior Front End Engineer
beqom

Senior Back End Engineer
beqom

Technical Support Engineer
RVX Productions ehf.

Yfirmaður þjónustuvers Stafrænnar heilsu
Heilbrigðisráðuneytið

Hugbúnaðarsérfræðingur á sviði rekstrarlausna
Advania

Ráðgjafi í áhætturáðgjöf Deloitte
Deloitte

Sérfræðingur í viðskiptagreind, gervigreind og hagnýtingu gagna
Orka náttúrunnar

Hönnuður
Slippurinn Akureyri ehf

Deildarstjóri hugbúnaðarlausna
Skatturinn

Ráðgjafi viðskiptakerfa – á sviði innkaupa, framleiðslu, birgðastýringar og verkbókhalds
Advania

Hópstjóri tölvuþjónustu
TACTICA

Verkefnastjóri í Business Central
Advania