

Hjúkrunarfræðingur/ teymisstjóri - Endómetríósuteymi
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að taka þátt í að efla og þróa þjónustu endómetríósuteymis á Landspítala. Um er að ræða spennandi starf þar sem unnið er í þverfaglegu teymi. Viðkomandi mun, ásamt því að starfa sem teymisstjóri og halda utan um starfsemi teymisins, sinna öðrum verkefnum á móttöku kvenlækningadeildar.
Hjúkrunarfræðingurinn verður virkur þátttakandi í mótun framtíðarsýnar og eflingu þjónustu teymisins sem og stuðla að og þróa samstarf við hagsmunaaðila.
Unnið er að fjölbreyttum umbótaverkefnum og bjóðast margvísleg tækifæri til starfsþróunar.
Starfshlutfall er 80-100%, dagvinna og er starfið laust frá 1. nóvember 2025 eða eftir samkomulagi.
Á kvenlækningadeild starfar samhent teymi starfsfólks sem veitir fjölþætta heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn. Deildin, sem er í senn göngu-, dag- og legudeild, sinnir bráðatilfellum kvensjúkdóma sem og konum með góðkynja og illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum. Auk þess sinnir deildin bráðatilvikum kvensjúkdóma utan opnunartíma bráðaþjónustu kvennadeilda.
- Utanumhald og yfirsýn yfir starfsemi og þjónustu teymisins
- Sinnir tilfallandi verkefnum hjúkrunar á móttökudeild kvenlækninga
- Heilbrigðisþjónusta við notendur endómetríósuteymis í samræmi við gagnreynda þekkingu
- Þróun heilbrigðisþjónustu á þverfaglegum grundvelli
- Þátttaka í umbóta-, gæða- og vísindastarfi
- Stuðlar að liðsheild og menningu sálræns öryggis
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Brennandi áhugi á málefnum einstaklinga með endómetríósu
- Faglegur metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni til að þróa og aðlaga heilbrigðisþjónustu að fjölbreyttum þörfum notenda
- Áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
- Frumkvæði, drifkraftur og áreiðanleiki
- Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Angielski
islandzki




























































