

Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunarlækningadeild I
Hefur þú reynslu af skipulagi og umbótastarfi og nýtur þess að vinna með fólki að sameiginlegum markmiðum?
Við leitum eftir einstaklingi sem hefur yfirsýn, frumkvæði og brennur fyrir jákvæðri vinnustaðamenningu. Starf aðstoðarmanns deildarstjóra er lifandi og fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er eins. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á verkefnastjórnun og felur í sér skipulagslega ábyrgð, mönnun og þátttöku í umbótaverkefnum, auk víðtækra samskipta við skjólstæðinga, aðstandendur, starfsfólk, stoðþjónustur og stjórnendur. Viðkomandi vinnur náið með deildarstjóra, aðstoðardeildastjórum og er partur af stjórnendateymi deildar.
Öldrunarlækningadeild L1 er staðsett á Landakoti, í hjarta Reykjavíkur, í fallegu og friðsælu umhverfi. Þar dvelja sjúklingar í endurhæfingu eftir áfall eða bráð veikindi. Áhersla er lögð á gott og gleðiríkt andrúmsloft þar sem hver og einn nýtir sína styrkleika. Unnið er saman í teymisvinnu og við fögnum nýjum röddum, sjónarhornum og hugmyndum.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust samkvæmt samkomulagi.
Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Sigurdísi Ólafsdóttur deildastjóra, Camille aðstoðardeildastjóra og Nichole aðstoðardeildastjóra. Inngilding ríkir á L1 og því hvetjum við alla sem telja þetta vera starf fyrir sig að senda inn umsókn.
- Símavarsla og aðstoð við að stýra vaktinni ásamt vaktstjóra og hópstjóra
- Halda utan um tímabókanir og ferðir skjólstæðinga innan- og utanhúss
- Umsjón með Vinnustund og aðstoð við mönnun vakta
- Ýmis mannauðstengd verkefni svo sem þátttaka í móttöku og aðlögun nýrra starfsmanna, undirbúningur fyrir starfsmannasamtöl og atvinnuviðtöl
- Yfirsýn yfir þjálfun og endurmenntun starfsfólks
- Ýmis sérhæfð verkefni sem tengjast umbótastarfi, samskiptum og samhæfingu eins og að halda utan um fræðslu, starfsdaga, fundi og aðra viðburði
- Yfirsýn yfir rekstrarumhverfi
- Ritun og úrvinnsla fundargerða og annarra gagna sem tengjast starfseminni
- Önnur verkefni að beiðni deildarstjóra
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði
- Viðbótarmenntun eða framhaldsnám í mannauðsstjórnun eða verkefnastjórnun æskileg
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Leiðtoga- og skipulagshæfni
- Góð samskiptahæfni sem stuðlar að góðum starfsanda
- Jákvæðni, hvetjandi og lausnarmiðuð hugsun í starfi
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli
islandzki
Angielski




























































