Marel
Marel
Marel

Framleiðslusérfræðingur

Framleiðslusérfræðingur í framleiðsluþróunarteymi

Hefur þú brennandi áhuga á framleiðslu?

JBT Marel leitar að framleiðslusérfræðingi (Manufacturing Engineer) sem hefur áhuga á og metnað til að læra að bæta framleiðsluferla, tryggja gæði vara og leiða stöðugar umbætur í framleiðsluferlinu. Við bjóðum upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi, fjölbreytt og skemmtileg verkefni, fjölskylduvænan vinnutíma, frábært mötuneyti með heitum mat í hádeginu og aðstöðu til líkamsræktar.

Starfið er hluti framleiðsluþróunarteymis við starfsstöð JBT Marel á Íslandi. Starfið krefst þess að viðkomandi sé drífandi og skipulagður með góða samskiptahæfileika.

Starfssvið

  • Hanna, innleiða og hámarka framleiðsluferla með áherslu á öryggi, gæði og skilvirkni.
  • Þróa og viðhalda ferlaskjölum og vinnuleiðbeiningum.
  • Samstarf við þverfagleg teymi (t.d. Gæða-, Framleiðslu- og Hönnunarteymi) til að leysa framleiðsluvandamál.
  • Þekking/áhugi á aðferðum rótargreiningar, geta til að greina orsakir vandamála og innleiða úrbætur í samvinnu með hagaðilum.
  • Styðja við innleiðingu nýrra vara og tryggja hnökralausa yfirfærslu í framleiðslu.
  • Greina tækifæri til sjálfvirknivæðingar og kostnaðarlækkunar.
  • Tryggja að öllum stöðlum og reglum fyrirtækisins sé fylgt eftir.

Hæfniskröfur

  • Menntun í verk- eða tæknifræði eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af notkun SAP & PLM er kostur.
  • Þekking á framleiðsluferlum og -aðferðum.
  • Þekking á aðferðum vöruþróunar í vélaframleiðslu er kostur.
  • Skipulags- og samskiptafærni er mikilvæg.
  • Hæfni á sviði gagna- og kostnaðargreininga.
  • Reynsla af notkun SolidWorks eða sambærilegra 3D CAD kerfa er kostur.
  • Geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og geta til að miðla efni í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2025. Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel, www.marel.com.

Utworzono ofertę pracy4. November 2025
Termin nadsyłania podań23. November 2025
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Analiza danychPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.InnowacyjnośćPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.SAPPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe