

Sérfræðingur í verkefnastjórnun og hönnun lagna
Set leitar að öflugum og reyndum sérfræðingi til að sinna spennandi verkefnum í hönnun, undirbúningi og framkvæmd lagnaframkvæmda.
Við sinnum fjölbreyttum verkefnum fyrir bæði opinbera aðila og einkaaðila á sviði vatns-, frárennslis- og hitaveitulagna um allt land.
Hlutverk og ábyrgð
-
Hönnun og útfærsla á lagnakerfum
-
Verkefnastjórnun og samhæfing við verktaka, verkkaupa og þjónustudeild
-
Eftirlit með verkframvindu, gæðum og tæknilegum lausnum.
-
Gerð teikninga og tæknigagna (AutoCAD, SolidWorks, Revit eða sambærileg forrit).
-
Útreikningar, teikningar og verklýsingar auk samskipta við arkitekta, rafmagns- og byggingarverkfræðinga.
-
Samstarf við verktaka, eftirlit með hönnun í framkvæmd og trygging þess að kerfi uppfylli staðla og gæði.
-
Háskólamenntun á sviði tæknifræði, verkfræði eða önnur viðeigandi menntun.
-
Reynsla af hönnun eða uppsetningu lagna er mikill kostur.
-
Þekking á AutoCAD, SolidWorks og/eða öðrum hugbúnaði tengt hönnun.
-
Reynsla af verkefnastjórnun í iðnaðarumhverfi er æskileg
-
Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma.
-
Faglegt og vaxandi starfsumhverfi með miklum tækifærum til áhrifa.
-
Sterkan teymisanda og stuðning frá reyndum sérfræðingum.
-
Sveigjanlegan vinnutíma og möguleika á starfsþróun.
-
Tækifæri til að taka þátt í verkefnum sem bæta innviði samfélagsins.
islandzki
Angielski










