
Landsnet hf.
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar.Við erum líka framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.

Sérfræðingur í kerfisgreiningum - tímabundið starf
Viltu taka þátt í þróun flutningskerfis rafmagns á Íslandi?
Við leitum að sérfræðingi í kerfisgreiningum í tímabundið starf til eins árs sem vill hafa áhrif á þróun flutningskerfis rafmagns og taka þátt í spennandi tímum orkuskipta. Þú verður hluti af öflugu teymi sérfræðinga sem sinna greiningum og áætlanagerð fyrir flutningskerfi Landsnets og tryggja þannig traustar tengingar nýrra virkjana og notenda við kerfið.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir nýútskrifaða raforkuverkfræðinga eða aðra með brennandi áhuga á raforkukerfinu og þróun flutningskerfisins til að öðlast dýrmæta reynslu og taka virkan þátt í framtíðinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framkvæma kerfisgreiningar og stuðla að traustri áætlanagerð sem leggur grunn að fjárfestingum í flutningskerfinu.
- Taka þátt í greiningu á áhrifum nýrra virkjana, notenda og breytinga á flutningskerfinu.
- Vinna með aflflæðihermum og greiningartólum við útreikninga og sviðsmyndagreiningar.
- Þróa verklag og aðferðir til að efla gagnanýtingu og auka skilvirkni.
- Taka þátt í þróunarverkefnum og samstarfi við sérfræðinga innan og utan Landsnets.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði raforkuverkfræði. Mikil starfsreynsla getur vegið upp á móti formlegri menntun.
- Reynsla af notkun aflflæðiherma (t.d. DigSilent Power Factory eða sambærilegt).
- Þekking á kerfisgreiningum, gagnavinnslu og framsetningu gagna.
- Hæfni í textaskrifum og skýrslugerð er æskileg.
- Þekking á forritun í Python er kostur.
- Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Hæfni og þor til að taka ákvarðanir og tjá sig faglega.
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun flutningskerfis rafmagns Íslands.
- Þverfaglegt og skapandi starfsumhverfi sem leggur áherslu á nýsköpun og umbætur.
- Samstarf við fjölbreyttan hóp sérfræðinga sem vinna að framtíð raforkukerfisins.
- Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
- Stuðning við faglega og persónulega þróun.
- Starf sem skiptir máli fyrir samfélagið!
Utworzono ofertę pracy17. October 2025
Termin nadsyłania podań2. November 2025
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Rangárvellir 150122, 603 Akureyri
Miðás 7A, 700 Egilsstaðir
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (12)

Gagnaforritari – Data Engineer
Orkuveitan

Sérfræðingur í verkefnastjórnun og hönnun lagna
Set ehf. |

Fulltrúi í upplýsingastjórnun
Landsnet hf.

Vélbúnaðarhönnuður
Verkís

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin

Project Manager
Wisefish ehf.

Svæðisstjóri Norðursvæðis
Vegagerðin

VERKEFNASTJÓRI REKSTURS
atNorth

Verkefnastjóri framkvæmda
Vinnvinn

VERKFRÆÐINGUR – GANGSETNINGAR OG PRÓFANIR
atNorth

Verkefnastjóri nýframkvæmda og greininga
Mosfellsbær

Verkefnastjórn og framkvæmdaráðgjöf byggingarframkvæmda
VSÓ Ráðgjöf ehf.