

Forstöðulæknir hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf forstöðulæknis hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu frá 1. febrúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi samkvæmt nýju skipuriti spítalans sem tók gildi 1. febrúar 2024. Forstöðulæknir starfar innan hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu og leiðir lækningar innan sviðsins.
Hlutverk forstöðulæknis er að þróa þjónustu við sjúklinga innan hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu og vinna að samhæfingu við aðra starfsemi spítalans í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala.
Forstöðulæknir heyrir undir framkvæmdastjóra og er hluti af sviðsstjórn og sem ber ábyrgð á stefnumótun og rekstri.
Forstöðulæknir leiðir ásamt forstöðuhjúkrunarfræðingum sviðsins teymi framlínustjórnenda, þ.e. yfirlækna og deildarstjóra, sem hafa það sameiginlega verkefni að samhæfa, efla og þróa þá þjónustu sem veitt er á öruggan, faglegan og hagkvæman hátt. Forstöðulæknir ber ríkar og gagnkvæmar skyldur til samvinnu, samráðs og uppbyggingar teymisvinnu.
Leitað er eftir kraftmiklum leiðtoga, með klínískan bakgrunn, sem hefur brennandi áhuga á að vinna að því að byggja upp sterka liðsheild og að framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans.
Um er að ræða 100% starf. Auk stjórnunarhlutverks er gert ráð fyrir þátttöku í klínísku starfi í samráði við framkvæmdastjóra.
islandzki
Angielski













































