Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Komdu norður!

Heilsugæslan á Akureyri, Sunnuhlíð (HSN) leitar að sérfræðingi í heimilislækningum

Laus er til umsóknar staða sérfræðings í heimilislækningum hjá HSN, Heilsugæslunni Sunnuhlíð á Akureyri. Um er að ræða ótímabundið starf fyrir lækni sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Starfshlutfall er 100% eða er skv. samkomulagi en einnig kemur til boða tímavinnusamningur. Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi en gefur einstakt tækifæri til að koma að þróun á nýjum vinnustað. Næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslunnar á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Heilsugæslan á Akureyri er í glæsilegu húsnæði í Sunnuhlíð sem er sérhannað fyrir starfsemina. Áhersla er á teymisvinnu þar sem unnið er í þverfaglegum teymum með það að markmiði að bæta þjónustu við skjólstæðinga og bjóða upp á gott og styðjandi vinnuumhverfi.

Hjá stofnuninni starfar fjölbreyttur hópur fólks þar sem áhersla er lögð á samvinnu og samheldni. Rík áhersla er lög á vellíðan á vinnustað, samþættingu vinnu og einkalífs, símenntun, öryggi, gæði og fagmennsku.

HSN leggur jafnframt áherslu á heilsueflingu starfsfólks en Heilsugæslustöðin á Akureyri er heilsueflandi vinnustaður og var HSN fyrsta heilbrigðisstofnunin til að hefja innleiðingu á heilsueflandi vinnustað á landsvísu.

Kynntu þér hvers vegna þú ættir að koma norður og bætast í okkar öfluga hóp með því að smella á Komdu norður! | Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almennar lækningar og heilsuvernd 
  • Vaktþjónusta skv. samkomulagi 
  • Fræðsla og kennsla starfsfólks og nema 
  • Gæða- og þróunarstarf 
  • Handleiðsla sérnámslækna og annarra unglækna 
  • Þátttaka í uppbyggingu heimilislækninga 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sérfræðileyfi í heimilislækningum 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum    
  • Áhugi á teymisvinnu 
  • Fagmennska og jákvæðni 
  • Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi     
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð 
  • Faglegur metnaður, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki 
  • Áhugi á samstarfi við aðrar starfsstéttir  
  • Góð almenn íslensku- og tölvukunnátta 
  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi 
Utworzono ofertę pracy4. December 2025
Termin nadsyłania podań2. January 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Akureyri
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe