Akureyri
Akureyri
Akureyri

Fjársýslusvið: Verkefnastjóri

Fjársýslusvið Akureyrarbæjar leitar að talnaglöggum, skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi til starfa í hagþjónustu og áætlanagerð. Um ótímabundið starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni í samskiptum, hafa áhuga og metnað til þess að takast á við fjölbreytt rekstrartengd verkefni ásamt færni í framsetningu gagna.

Á Fjársýslusviði Akureyrarbæjar starfa um 15 starfsmenn við bókhald, innheimtu, uppgjör, áætlanagerð, rekstrareftirlit og fjölbreytt greiningar-og rekstrartengd verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjárhagslegt eftirlit með rekstri stofnana.
  • Gerð greininga og skýrslna um rekstur stofnana.
  • Upplýsingagjöf og rekstrarleg ráðgjöf til stjórnenda.
  • Tölfræðivinnsla og framsetning gagna í mælaborði Power BI.
  • Þátttaka í gerð og eftirfylgni starfs- og fjárhagsáætlunar.
  • Þátttaka í vinnu við innleiðingu nýrra verkferla, verklags og kerfa sem og þróun þeirra.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og falla innan starfssviðs viðkomandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (BSc/BA eða sambærilegt) sem nýtist í starfi s.s. á sviði fjármála, viðskipta, hagfræði eða verkfræði.
  • Framhaldsmenntun er kostur.
  • Framúrskarandi færni á Excel og mjög góð almenn tölvukunnátta.
  • Færni í framsetningu gagna og annara upplýsinga í skýrsluformi.
  • Reynsla og þekking á hreinsun og úrvinnslu ganga og tengingu gagnasetta er kostur.
  • Þekking á gagnagreiningatólum, t.d. PowerBI er kostur.
  • Geta og færni til að öðlast nýja þekkingu og tileinka sér notkun nýrra forrita og vinnubragða.
  • Góð greiningarhæfni og talnalæsi.
  • Geta til að vinna sjálfstætt og markvisst að eigin verkefnum.
  • Þekking á rekstri og reikningshaldi bæði á opinberum og almennum markaði er kostur.
  • Framúrskarandi samskiptafærni.
  • Færni til leiðsagnar og kennslu.
  • Metnaður til að ná árangri í starfi og innleiða nýjungar.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Utworzono ofertę pracy26. January 2026
Termin nadsyłania podań9. February 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Geislagata 9, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Analiza danychPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Power BI
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe