
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Verkstjóri í Lystigarð Akureyrar
Umhverfis- og mannvirkjasvið óskar eftir að ráða samviskusaman og vandvirkan einstakling sem verkstjóra í 100% starf í Lystigarð Akureyrar. Starfið er ótímabundið og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Lystigarður Akureyrar er rekinn af Akureyrarbæ sem grasagarður og skrúðgarður. Almenningsgarðurinn var opnaður árið 1912 og grasagarðurinn árið 1957. Garðurinn gegnir fjölþættu hlutverki; annars vegar sem lifandi safn plantna þar sem áhersla er lögð á innflutning, prófanir og ræktun fallegra og harðgerra erlendra plantna sem henta íslenskum aðstæðum, og hins vegar sem almenningsgarður til fróðleiks, upplifunar og útivistar. Lystigarðurinn er víðkunnur fyrir fegurð sína og fjölbreytt plöntusafn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri Lystigarðsins og yfirumsjón með allri verklegri starfsemi.
- Skipulagning, útplöntun, viðhald og skráning plöntusafnsins í samstarfi við grasafræðing garðsins.
- Yfirumsjón með fræsöfnun.
- Önnur tilfallandi verkefni innan umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Garðyrkjunám af Garð- og skógarplöntubraut eða Skrúðgarðyrkjubraut.
- Meistararéttindi í skrúðgarðyrkju er kostur.
- Fræðileg þekking og víðtæk reynsla af garðyrkjustörfum.
- Góð plöntuþekking.
- Reynsla af verkstjórn er æskileg.
- Geta til að lesa og vinna eftir teikningum.
- Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði, stundvísi og samviskusemi.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Utworzono ofertę pracy27. January 2026
Termin nadsyłania podań10. February 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaInterakcje międzyludzkieSamodzielność w pracyOgrodnictwo krajobrazoweNastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (6)

Fjársýslusvið: Verkefnastjóri
Akureyri

Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar: Umsjónarmaður véla og tækja
Akureyri

Umhverfismiðstöð Akureyrar: Verkstjóri umferðar- og gatnalýsingar
Akureyri

Forstöðumaður Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur
Akureyri

Þjónustu- og menningarsvið: Húsumsjónarmaður
Akureyri

Sumarstörf Velferðarsvið: Karlar í velferðarþjónustu
Akureyri
Podobne oferty pracy (12)

Starfsfólk í yfirborðsfrágang óskast
Lóðaþjónustan ehf

Verkstjóri á Þórshöfn - Ísfélag hf.
Ísfélag hf.

Verkstjóri í laxavinnslu
Arnarlax ehf

Verkstjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf

Umhverfismiðstöð Akureyrar: Verkstjóri umferðar- og gatnalýsingar
Akureyri

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Gróðurhúsatýpa sem elskar tómata.
Sólheimasetur ses

Verkstjóri á starfsstöð Samskipa á Selfossi
Samskip

Garðyrkjufræðingur óskast til starfa í lífrænu Gróðurhúsi
Ás styrktarfélag

Kirkjugarðar Reykjavíkur - Gufunesgarður
Kirkjugarðar Reykjavíkur

Verkstjóri timbursölu Fagmannaverslunar
Húsasmiðjan

Bifvélavirki / Mechanic
Lotus Car Rental ehf.