Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Aðstoðarforstöðumanneskja frístundar

Við í Salaskóla leitum að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í starf aðstoðarforstöðumanneskju frístundar. Um er að ræða tímabundna ráðningu vegna afleysingar í eitt skólaár, frá 1. ágúst 2026-31. júlí 2027.

Salaskóli tók til starfa haustið 2001 og er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. árgangi. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf undir einkunnarorðunum vinátta - virðing - samstarf og hefur uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar verið lögð til grundvallar í skólastarfinu.

Í frístund Salaskóla er lögð áhersla á að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni og hópastarf, jafnt inni og úti, og hafa börnin að einhverju leyti val um viðfangsefni. Áhersla er á að þroska félagsfærni og vináttu í gegnum leik og starf. Aðstoðarforstöðumanneskja ber ábyrgð á stjórnun og starfi frístundar ásamt forstöðukonu í samstarfi við stjórnendur skólans. Á næsta skólaári verða líklega um 140 börn í frístund.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Staðgengill forstöðukonu.
  • Þátttaka í og aðstoð við skipulag hópastarfs og verkefna og við rekstur frístundar.
  • Hópastarf með börnum inni og úti. 
  • Samvinna og samstarf við starfsfólk frístundar, kennara, foreldra og stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólanám á sviði tómstundafræða, uppeldisfræða eða tengdra greina er kostur.
  • Reynsla af stjórnun og skipulögðu starfi með börnum er æskileg.
  • Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Samskiptahæfni, frumkvæði og sköpunargleði.
  • Færni og vilji til að starfa í teymi með velferð og farsæld barna að leiðarljósi. 
  • Góð tök á íslensku bæði í máli og riti.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Utworzono ofertę pracy13. May 2026
Termin nadsyłania podań27. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Versalir 5, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe