
Kringlumýri frístundamiðstöð
Frístundamiðstöðin Kringlumýri stendur fyrir viðamiklu frístundastarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 – 16 ára í Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfi. Mikið er lagt upp úr því að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf á frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum. Starfsstaðir Kringlumýrar eru 15 samtals.
Aðstoðarforstöðumaður í frístundastarfi fatlaðra barna/ungl
Félagsmiðstöðin Askja starfrækir frístundastarf fyrir börn og unglinga í 8.-10. bekk Klettaskóla eftir að skóladegi líkur til kl. 16:30 ásamt því að vera með heila daga á skólafrídögum. Einnig er boðið upp á sumarstarf frá kl. 8.30 til 16.30. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð, heilbrigðan lífsstíl og félagslega virkni. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Halda úti fagstarfi fyrir börn og unglinga í Korpuskóla í samræmi við starfsmarkmið SFS, starfsáætlun SFS og starfsáætlun frístundamiðstöðvarinnar og tryggja jafna möguleika barna og unglinga í Klettaskóla og Korpuskóla til þátttöku í frístundastarfi borgarinnar.
- Umsjón með daglegri starfsemi Öskju í samvinnu við forstöðumann.
- Skipulagning frístundastarfsins í samráði við bæði börn og unglinga sem og starfsfólk.
- Leiðbeina og taka þátt í leik og starfi með börnum og unglingunum.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn.
- Að veita starfsfólki leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
- Er staðgengill forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar s.s. þroskaþjálfafræði, tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
- Leyfisbréf þroskaþjálfa.
- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Þekking og reynsla af starfi með fötluðum börnum og unglingum.
- Þekking og reynsla af málefnum frítímans.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Samskiptahæfni sem miðar að því að koma að og leysa erfið mál sem tengjast starfsfólki og /eða þjónustunotendum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfinu.
- Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta.
- Góð íslenskukunnátta.
Utworzono ofertę pracy11. May 2026
Termin nadsyłania podań26. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Bakkastaðir 2, 112 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaSumiennośćSamodzielność w pracyOrganizacjaPraca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Verkefnastjóri frístundar í Krikaskóla
Krikaskóli

Þroskaþjálfi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi óskast í Kóraskóla
Kóraskóli

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Forstöðumaður frístundar í Varmárskóla
Varmárskóli

Aðstoðarforstöðumaður í frístund Varmárskóla
Varmárskóli

Deildarstjóri í leikskólanum Rjúpnahæð
Rjúpnahæð

Leikskólakennarar fyrir næsta skólaár
Leikskólinn Sumarhús

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Klettaskóli - Kennari / þroskaþjálfi
Klettaskóli

Skóla- og frístundaliði - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á yngsta stigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær