

Deildarstjóri á yngsta stigi - Engidalsskóli
Engidalsskóli óskar eftir að ráða drífandi og kraftmikinn deildarstjóra á yngsta stigi, 100% staða sem skiptist í 50% stjórnun kennslu samkvæmt samkomulagi.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk. Næsta vetur verða nemendur um 200.
Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er í innleiðingu leiðsagnarnáms. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestrarnám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa. Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt og faglegt skólastarf með okkur.
Leiðarljós skólans eru: Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast deildarstjórn á yngsta stigi
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinnur að mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
- Vinnur að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða kennslufræði
- Farsæl kennslu- og/eða stjórnunarreynsla í grunnskóla
- Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf
- Hæfni í að leysa ágreining og sætta ólík sjónarmið
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar
- Reynsla af teymisvinnu kostur
- Lipurð í samskiptum og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Þekking og/eða reynsla af hugmyndafræðinni Uppeldi til ábyrgðar æskileg.
- Mjög góð íslenskukunnátta í riti og tali, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int), ETM Sjálfsmatsrammi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, í síma 5554433, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2026, ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026 eða nánara samkomulagi.
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari auk annarra gagna er málið varðar.
Skilyrði fyrir ráðningu er hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
islandzki



































