Akademias
Akademias
Akademias

Póstlistar með Mailchimp

Hámarkaðu árangur tölvupósta til viðskiptavina. Póstlistar eru meðal öflugustu markaðstóla fyrirtækja, en ekki alltaf nýttir til fulls.
Póstlistar geta haft áhrif á rekstur. Með réttum leiðum er hægt að auka sölu, svo sem með því að tilkynna nýjar vörur eða þjónustu og einnig styrkja ásýnd með fallegum póstum sem nýta vörumerkið vel og fyrirbyggja óþörf símtöl inn til fyrirtækisins.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
  • fái góða innsýn í bestu leiðirnar þegar kemur að vali á kerfum og helstu stillingum

  • skilji að tölvupóstur er sem einn miðill og hvernig fyrsta uppsetning er valin, hvernig tölvupóstur er hannaður og farið yfir sendingar

  • þekki mikilvægi textaskrifa fyrir póstlista ásamt því hvernig eftirfylgni og greiningar geta stutt við meiri árangur og geti sett upp herferð með einföldum hætti

 
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar sérstaklega vel fyrir markaðsstjóra, viðskiptastjóra, vörumerkjastjóra, og aðra stjórnendur og ásamt starfsmönnum sem koma að umsjón markaðsmála og tölvupóstsendinga fyrirtækja. 


Námskaflar og tími:
  • Kynning á námskeiði og leiðbeinanda - 2 mínútur
  • Tölvupóstur sem miðill - 11 mínútur
  • Kynning og áskriftir - 5 mínútur
  • Fyrsta uppsetning í Mailchimp - 4 mínútur
  • Stilltu betur markhópa og póstlista - 6 mínútur
  • Byggðu upp póstlista með formum - 8 mínútur
  • Textaskrif fyrir póstlista - 32 mínútur
  • Sérsniðið efni og hreyfimyndir - 14 mínútur
  • Setja upp herferð - 8 mínútur
  • AB prófun, forskoðun, villuprófun, tímasetningar og sjálfvirkni - 50 mínútur
Heildarlengd:
140 mínútur

Textun í boði:
Íslenska

Leiðbeinandi:

Bjarni Ben

Bjarni Ben er verkefnastjóri hjá Advania. Hann starfaði hjá Sky í Bretlandi í rúmlega 3 ár við markaðssetningu á stafrænum miðlum með áherslu á tölvupósta. Bjarni hefur einnig starfað sem þróunarstjóri samfélagsmiðla og viðskiptastjóri hjá Pipar\TBWA og fjallað um tækni undanfarin 6 ár í Tæknivarpinu.
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
24 000 kr.
Kliknij przycisk poniżej, aby zarejestrować się teraz i otrzymać 10% zniżki. Użyj kodu promocyjnego: Alfred
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie