Akademias
Akademias
Akademias

Aðferðafræði Coaching fyrir stjórnendur

Hvernig er hægt að kveikja áhuga og drifkraft hjá starfsfólki og hvernig getum við stýrt teymi til árangurs, eru spurningar og verkefni sem margir stjórnendur standa frammi fyrir. Coaching er eitt af helstu verkfærum stjórnandans til að ná árangri á þeim sviðum.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
  • Geti nýtt aðferðafræði Coaching til árangurs, læri og styrkist í eigin sjálfsþekkingu og samskiptum
  • Fái innsýn í hvernig hægt er að nota eigin drifkraft til að fá sem mest úr eigin ágæti
  • Kynnist aðgerðum og þeim lærdómi sem ávinnst með Coaching

     

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir alla stjórnendur sem vilja ná því besta fram í starfsfólki sínu. 



Námskaflar og tími:
  • Inngangur - 12 mínútur
  • Sjálfsþekking og samskipti - 11 mínútur
  • Drifkraftur - 18 mínútur
  • Aðgerðir og lærdómur - 12 mínútur
Heildarlengd:
53 mínútur

Textun í boði:
Enska og íslenska

Leiðbeinandi:

Eva Karen Þórðardóttir

Eva Karen Þórðardóttir er stofnandi og eigandi ráðgjafarfyrirtækisins Effect ehf. þar sem hún hefur meðal annars starfað sem fræðslustjóri að láni í fjölmörgum fyrirtækjum á Íslandi. Eva hefur unnið sem stjórnandi í sínum eigin fyrirtækjum en einnig hjá öðrum. Hún hefur komið að ýmsum verkefnum fyrir íslensk og erlend fyrirtæki sem ráðgjafi og unnið mikið í stjórnendaþjálfun á Íslandi. Eva er lærður kennari frá Kennaraháskóla Íslands, lauk námi í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og lauk svo MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík 2019. Eva Karen er einnig ACC vottaður markþjálfi.
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
24 000 kr.
Kliknij przycisk poniżej, aby zarejestrować się teraz i otrzymać 10% zniżki. Użyj kodu promocyjnego: Alfred
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie