Akademias
Akademias
Akademias

Almannatengsl, samskipti við fjölmiðla og krísustjórnun

Í námskeiðinu lærir þú grunnatriði almannatengsla og hvernig þau nýtast fyrirtækjum í samskiptum við sína markhópa.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
  • Skilji hvað almannatengsl eru og hvernig þau gætu nýst þér vel í starfi

  • Öðlist innsýn í markhópa, markmið og lykilskilaboð, auki færni sína í samskiptum við fjölmiðla og hvernig hægt er að útbúa fréttatilkynningar með ákveðinni leið til að koma okkur í fréttir

  • Læri hvernig best er að undirbúa sig undir viðtal og hvernig hægt er að nýta samfélagsmiðla, þekki til orðspors og málefnastjórnunar og fái innsýn einnig í það hvað felst í krísustjórnun

Fjölmörg dæmi eru tekin til að dýpka skilning á viðfangsefninu.

 

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir aðila úr öllum geirum atvinnulífsins sem vilja auka þekkingu sína og færni í almannatengslum og samskiptum við fjölmiðla, ásamt getu þeirra til að bregðast við krísum. 



Námskaflar og tími:
  • Hvað eru almannatengsl og hvernig nýtast þau? - 27 mínútur
  • Markmið, markhópar og lykilskilaboð - 27 mínútur
  • Samskipti við fjölmiðla - 18 mínútur
  • Fréttatilkynningar og hvernig komum við okkur í fréttir - 12 mínútur
  • Hvernig undirbúum við okkur undir viðtal og samfélagsmiðlar - 19 mínútur
  • Orðspors- og málefnastjórnun - 14 mínútur
  • Krísustjórnun - 38 mínútur
Heildarlengd:
155 mínútur

Textun í boði:
Íslenska

Leiðbeinandi:

Grétar Theodórsson

Grétar Sveinn Theodórsson er almannatengill hjá Innsýn samskiptum og kennir einnig almannatengsl við Háskóla Íslands. Hann hefur rúmlega tólf ára reynslu sem ráðgjafi í almannatengslum og hefur unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum, íslensk sem erlend.
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
24 000 kr.
Kliknij przycisk poniżej, aby zarejestrować się teraz i otrzymać 10% zniżki. Użyj kodu promocyjnego: Alfred
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie