Eimskip

Eimskip

Við komum góðu til leiðar
Eimskip
About the company
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun. Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Aðildarfélag Festu fyrir samfélagsábyrgð

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2022

Jafnlaunavottun

UN Global Compact

Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Stefnur í mannauðsmálum
Markmið Eimskips er að skapa starfsfólki jöfn tækifæri í öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi enda vita stjórnendur að árangur í rekstri félagsins byggist á þekkingu og metnaði starfsfólks. Þess vegna vinnur félagið að því að efla starfshæfni einstaklinga og hvetja þá til að nýta eigin áhuga og frumkvæði til vaxtar og persónulegra framfara.
Sjálfbærnistefna
Eimskip hefur skýra stefnu í sjálfbærnimálum og hefur sett sér metnaðarfull markmið þegar kemur að þessum málaflokkum meðal annars að vera kolefnishlutlaus árið 2040. Áhersla er lögð á jöfn tækifæri í góðu starfsumhverfi þar sem verkefnamiðað vinnurými skipar stóran sess.

1001-5000

employees

Health / Sport

Heilsu og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk og fleira

Food / meal at work

Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk

Entertainment

Öflugt starfsmannafélag sem rekur mörg frábær orlofshús víðsvegar um landið

Flexible working hours

Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi

Commute

Heilsu og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. samgöngustyrk