Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Yfirlæknir mæðraverndar - HH og ÞÍH

Við leitum að sérfræðingi í kvensjúkdóma og fæðingarhjálp í starf yfirlæknis mæðraverndar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, HH og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, ÞÍH. Starfshlutfall er 80-100% sem skiptist 50-70% hjá HH og 30% hjá ÞÍH. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir kvensjúkdóma- og fæðingarlækni sem hefur áhuga á a þátttöku í nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.Þróunarmiðstöð vinnur að samræmingu verklags og samhæfingar milli fagfólks á heilsugæslustöðvum, gæðaþróun og framförum í heilsugæslu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á og sinnir sérfræðiþjónustu og ráðgjöf í mæðravernd á heilsugæslustöðvum
  • Frumkvæði að hagræðingu, samræmingu og skipulagningu þjónustunnar á heilsugæslustöðvum
  • Ráðgefandi varðandi sérhæfða meðferð í mæðravernd til annarra starfsmanna innan HH og á landsvísu
  • Sinna innleiðingu faglegra leiðbeininga og nýjunga á sviði mæðraverndar
  • Stuðla að öflugum innlendum og erlendum samskiptum á sviði mæðraverndar
  • Þróun og samræming mæðraverndar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í samvinnu við annað fagfólk í mæðravernd á landsvísu
  • Sinna vísinda-, þróunar-, og gæðastarfi á sínu fagsviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Sérfræðimenntun í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp
  • Reynsla af gæðaeftirliti og vísindastörfum
  • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áreiðanleiki jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði
Advertisement published18. March 2025
Application deadline31. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags