
Heilsa
Heilsa ehf. er leiðandi heildsali í heilsuvörum og lyfjum á Íslandi. Hjá Heilsu starfar samhentur hópur starfsfólks að því að koma gæðavörum í réttar hendur fljótt og örugglega.
Heilsa er dótturfélag Lyfju og hluti af Festi samstæðunni.

Vörustjóri heilbrigðisvöru
Heilsa leitar að drífandi og árangursmiðuðum vörustjóra sem keyrir áfram vöxt og markaðsstöðu í ört vaxandi fyrirtæki.
Sem vörustjóri munt þú móta vörustefnu sterkra alþjóðlegra vörumerkja á Íslandi, byggja upp vöruflokka og nýta tækifæri á markaði – frá hugmynd til árangurs. Þú vinnur jafnframt náið með lykilviðskiptavinum að því að hámarka sýnileika, sölu og árangur í markaði.
Hlutverk og ábyrgð
- Ábyrgð á vexti, framlegð og frammistöðu heilbrigðisvöruflokka
- Uppbygging og þróun vöruframboðs og vörumerkja
- Greining og nýting vaxtartækifæra, m.a. með innleiðingu nýrra vörumerkja
- Náið samstarf við lykilviðskiptavini um vöruframboð, sýnileika og söluaðgerðir
- Samskipti og samningaviðræður við innlenda og alþjóðlega birgja
- Stýring verðlagningar, kostnaðar og birgða
- Skipulagning og framkvæmd markaðs- og söluaðgerða
- Gagnadrifin ákvarðanataka byggð á sölugögnum
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi - heilbrigðismenntun er kostur
- Reynsla af að skapa vöxt og byggja upp vöruflokka eða vörumerki
- Reynsla af birgjasamskiptum og samningaviðræðum
- Sterk viðskiptahugsun og geta til að keyra tækifæri í framkvæmd
- Reynsla af framlegðarstýringu og gagnadrifinni ákvarðanatöku
- Framúrskarandi samskipta- og samningahæfni
- Sjálfstæði og drifkraftur
- Gott vald á íslensku og ensku
- Brennandi áhugi á heilsu og vellíðan
Af hverju Heilsa?
- Tækifæri til að móta vöruframboð á heilsumarkaði á Íslandi
- Beint samstarf við lykilviðskiptavini og áhrif á sölu á markaði
- Samstarf við sterk alþjóðleg vörumerki og birgja
- Framsækið fyrirtæki í örum vexti
- Nútímaleg aðstaða á nýrri skrifstofu Heilsu í Bakkanum og öflugir liðsfélagar
- Starfsmannafríðindi sem fylgja því að vera hluti af Festi samstæðunni
Ef þú ert með drifkraft til að byggja upp, þróa og skila árangri – viljum við heyra frá þér!
Nánari upplýsingar veitir Katrín Ýr Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Heilsu, [email protected].
Advertisement published27. April 2026
Application deadline8. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sölumaður á glerlausnum Samverks
Glerverksmiðjan Samverk

Ferðaráðgjafi og Viðskiptaþróun í Hópadeild
Kilroy

Starf þjónustufulltrúa á Hreyfli
Hreyfill

Nýliðar á endurskoðunarsviði - Akureyri
KPMG á Íslandi

Flugafgreiðsla
Reykjavik FBO

Sölu- og þjónustufulltrúi
Nói Síríus

Leitum að innkaupafulltrúa - framtíðarstarf
Mekka Wines & Spirits hf

Sölusérfræðingur - Advise ehf.
Advise Business Monitor

Menningar- og þjónustusvið - Þjónustufulltrúi sumarstarf
Reykjanesbær

Þjónustufulltrúi hjá Krónunni
Krónan

Móttaka / skrifstofustarf
Pekron

Starf á Fjármálasviði
Torcargo