Nói Síríus
Nói Síríus
Nói Síríus

Sölu- og þjónustufulltrúi

Vilt þú starfa með sætustu vörumerkjum landsins?

Nói Síríus leitar að jákvæðum, lausnamiðuðum og áreiðanlegum sölu- og þjónusturáðgjafa til starfa í þjónustuveri fyrirtækisins. Mikilvægt er að einstaklingurinn vinni skipulega og veiti vandaða þjónustu í samræmi við hátt þjónustustig fyrirtækisins. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á fastráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka, úrvinnsla og skráning pantana og fyrirspurna
  • Veita upplýsingar um vörur og þjónustu Nóa Síríus
  • Ráðgjöf til viðskiptavina
  • Aðstoð við reikningagerð
  • Almenn þjónusta við innri og ytri viðskiptavini
  • Stofnun vörunúmera og önnur tilheyrandi umsýsla
  • Aðstoð við verkefni innan þjónustustýringar
  • Almenn skrifstofuumsjón
  • Þátttaka í umbótastarfi
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf skilyrði
  • Háskólagráða sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Geta til að aðlagast breytingum í síbreytilegu starfsumhverfi
  • Geta til að vinna undir álagi og leysa mál á skilvirkan hátt
  • Góð tölvukunnátta 
  • Þekking á DAX og Microsoft Office pakkanum
  • Jákvæðni, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Heilsufarsskoðun og velferðarþjónusta frá utanaðkomandi fagaðila
  • Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins
  • Virkt starfsmannafélag
  • Golfklúbbur
  • Píluklúbbur
Advertisement published24. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hestháls 2-4, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags