Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Viltu bætast í hóp kennara á yngsta stigi frá og með 1. janúar 2026

Við auglýsum eftir umsjónarkennara á yngsta stigi vegna forfalla. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill bætast við mjög gott kennarateymi í góðu og jákvæðu umhverfi.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur og árgangateymi.
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af kennslu barna er æskileg.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Advertisement published18. December 2025
Application deadline2. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags