

Leikskólakennarar
Leikskólinn Hulduheimar auglýsir eftir leikskólakennurum frá og með 12. janúar 2026.
Leitað er að leikskólakennurum sem eru tilbúnir að starfa í leikskóla þar sem fram fer faglegt leikskólastarf með áherslu á leik, samvinnu, traust og gleði.
Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Áherslur Hulduheima eru á leik barna, félagslega færni, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og hvetjandi námsumhverfi. Leiðarljós leikskólans eru Virðing - Lýðræði - Samfélag.
Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Að fylgist vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í
samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar. - Að taka þátt í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og sinnir faglegum verkefnum sem
deildarstjóri felur honum. - Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum
undir stjórn leikskólastjóra. - Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi
leikskólans. - Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.
- Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður
felur honum.
- Leyfisbréf leikskólakennara.
- Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.
- Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Afsláttarkort Árborgar
- Styttri vinnuvika
Icelandic










