Eimskip
Eimskip
Eimskip

Verkstjóri í vöruhúsaþjónustu

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf verkstjóra í vöruhúsi á ört vaxandi starfssvæði Eimskip á Selfossi.

Hjá Eimskip á suðurlandi starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum til viðskiptavina á suðurlandi. Starfsstöðin er í dag að Háheiði 8 á Selfossi, en á haustmánuðum 2027 mun starfsemin flytjast í nýtt og sérhæft vöruhús á Selfossi. Breytingin mun skapa enn betri aðstöðu fyrir starfsfólk og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun starfseminnar.

Þjónustusvæði stöðvarinnar nær yfir Árnes- og Rangárvallasýslu og innifelur þéttbýliskjarna eins og Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka, Borg, Laugarvatn, Reykholt, Flúðir, Hellu og Hvolsvöll auk dreifingar í dreifbýli.

Fyrir réttan aðila er í boði fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf með margvíslegum tækifærum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini, innri jafnt sem ytri 
  • Verkstjórn og skipulagning verkefna í vöruhúsi  
  • Skiplagning og forgagnsröðun vörudreifingar innan svæðis  
  • Tölvuvinna við skráningar, eftirlit og skipulagningu dreifingar 
  • Þáttaka í skipulagning á viðhaldi tækja og húsnæðis  
  • Almenn vöruhúsastörf 
  • Önnur tilfallandi verkefni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund 
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Heiðarleiki, stundvísi og metnaður 
  • Starfsreynsla í vöruhúsi og við stjórnun er kostur 
  • Lyftararéttindi (J) eru æskileg  
  • Meirapróf (C/CE) er kostur  
  • Almenn tölvukunnátta  
  • Gott vald á íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
Fríðindi í starfi
  • Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið 
  • Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. samgöngustyrk og styrki vegna heilsuræktar, sálfræðiþjónustu og fleira 
  • Niðurgreiddur heitur hádegismatur í boði fyrir starfsfólk
Advertisement published27. August 2026
Application deadline8. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Háheiði 8, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags