Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta

Smiður

Stúdentagarðar óska eftir að ráða smið til starfa. Smiður sinnir almennu viðhaldi á Stúdentagörðum og öðrum einingum Félagsstofnunar stúdenta, svo sem leikskólum og veitingasölu, eftir þörfum. Smiður annast jafnframt nýsmíði og sér um innkaup á efni eftir þörfum.

Smiður tekur á móti stúdentum með hlýlegu viðmóti og veitir framúrskarandi þjónustu.

Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir almennu viðhaldi á Stúdentagörðum og öðrum einingum Félagsstofnunar stúdenta (FS)
  • Sinnir nýsmíði á Stúdentagörðum og innan Félagsstofnunar stúdenta (FS)
  • Hefur umsjón með tækjum og verkfærum í sinni vörslu
  • Sér um þrif og viðhald á verkstæði
  • Viðheldur góðri umgengni um sendibíl og sér um þrif eftir notkun
  • Sinnir öðrum tilfallandi störfum eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun nauðsynleg
  • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg 
  • Þjónustulyndi og samskiptahæfni
  • Lausnamiðað og jákvætt viðhorf 
  • Snyrtimennska 
  • Samviskusemi 
  • Skipulagshæfni 
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta er skilyrði
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
Fríðindi í starfi

Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda. Þar má meðal annars nefna íþróttastyrk og afslátt í Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og í Hámu.

FS er með öflugt starfsmannafélag sem sér meðal annars um að skipuleggja árshátíðarferðir erlendis annað hvert ár.

Advertisement published27. August 2026
Application deadline11. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Eggertsgata 6, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.CarpenterPathCreated with Sketch.Delivery
Work environment
Professions
Job Tags