
Verkstjóri áhaldahúss Grundarfjarðarbæjar
Grundarfjarðarbær leitar að öflugum og drífandi einstaklingi til að sinna starfi verkstjóra áhaldahúss sveitarfélagsins.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins. Verkstjóri leiðir daglegt starf áhaldahússins og þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins og gegnir lykilhlutverki í að tryggja góða þjónustu við íbúa, faglega framkvæmd verkefna og snyrtilegt og vel rekið umhverfi.
- Dagleg verkstjórn og skipulag starfa áhaldahúss.
- Verkstjórn starfsmanna, sumarstarfsfólks og vinnuskóla sveitarfélagsins.
- Umsjón með vinnuvélum, tækjum og öðrum búnaði sveitarfélagsins.
- Eftirfylgni með framkvæmdum og viðhaldsverkefnum sveitarfélagsins.
- Umsjón með gatnakerfi, opnum svæðum, fráveitu og vatnsveitu.
- Vetrarþjónusta, snjómokstur og hálkuvarnir.
- Samskipti við íbúa, verktaka og samstarfsaðila sveitarfélagsins.
- Þátttaka í áætlanagerð, rekstri og þróun verkefna á verksviði áhaldahúss.
- Önnur tilfallandi verkefni.
- Reynsla af verkstjórn eða sambærilegu starfi.
- Leiðtogahæfileikar og góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð.
- Skipulagshæfni og ábyrgðarkennd.
- Almenn tölvukunnátta.
- Gilt ökuréttindi.
- Vinnuvélaréttindi og/eða meirapróf eru kostur.
- Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Fjölbreytt og krefjandi starf.
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun og uppbyggingu sveitarfélagsins.
- Fjölbreytt verkefni á sviði framkvæmda, viðhalds og umhverfismála.
- Góðan vinnustað og öflugt samstarf við starfsfólk sveitarfélagsins.
Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2026.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir reynslu og áhuga á starfinu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Örvar Þór Örlygsson
Verkefnisstjóri tæknimála og framkvæmda
Sími: 430 8500
Netfang: [email protected]
Sækja skal um starfið á alfred.is.
Icelandic







