
Ferskar Kjötvörur
Ferskar kjötvörur er einn af stærstu kjötverkendum landsins en fyrirtækið sér matvörukeðjum Haga fyrir kjötvörum. Framleiðslan er bæði undir merkjum Ferskra kjötvara og verslananna sjálfra. Meðal sterkustu merkja Ferskra kjötvara eru Íslandsnaut og Íslandslamb.

Verkstjóri í nýrri kjötvinnslu
Við erum að stækka og opna nýja og glæsilega kjötvinnslu í haust og leitum því eftir verkstjóra.
Ferskar kjötvörur er einn af stærstu kjötverkendum landsins en fyrirtækið sér verslunum Haga og stórnotendum fyrir kjötvörum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn verkstjórn í kjötvinnslu.
- Verkun, pökkun og umsjón með þrifum og tiltekt á viðeigandi vörum.
- Dagleg umsjón starfsmanna í kjötvinnslu.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði matvælaframleiðslu er æskileg.
- Menntun í kjötiðn kostur.
- Reynsla af matvælaiðnaði.
- Reynsla af stjórnun er kostur.
- Almenn tölvukunnátta er skilyrði.
- Góð samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubörgðum.
- Íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli skilyrði og enskukunnátta er kostur.
Í dag er starfsstöð Ferskra Kjötvara við Síðumúla 34 en mun koma til með að flytja í haust í Álfabakka 2.
Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Gunnar Guðmundsson, framleiðslustjóri, í netfangi [email protected].
Advertisement published5. August 2026
Application deadline21. August 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Síðumúli 34, 108 Reykjavík
Álfabakki 2
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (9)

Verkstjóri í frysti og kæligeymslu Aðfanga
Aðföng

Forstöðumaður framkvæmda og veitna
Húnaþing vestra

Verkstjóri standsetningu flota / Fleet Turnaround Supervisor
Bílaleigan Berg - Sixt

Skrifstofustjóri
Hurðaskellir ehf.

Aðstoðarverkstjóri í flutningum á forsteyptum einingum
Einingaverksmiðjan

Flokkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Forstöðumaður
Sláturhús KVH ehf.

Leiðtogi í mótauppslætti
Verkeining

Húsasmiðir og reyndir verkamenn óskast til starfa
Húsasmíði