Húnaþing vestra
Húnaþing vestra
Húnaþing vestra

Forstöðumaður framkvæmda og veitna

Leitum að lausnamiðuðum, metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að leiða starf þjónustumiðstöðvar. Starfið eru liður í heildarendurskoðun á störfum þjónustumiðstöðvar með það að markmiði að viðhalda innviðum sveitarfélagsins og bæta þjónustu við íbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun þjónustumiðstöðvar og verkstýring s.s. skipulag, úthlutun verkefna og eftirlit.
  • Undirbúningur verka og efnisöflun: skipulagning verkefna, innkaup, gerð tímaáætlana og eftirfylgni með þeim.
  • Stjórn og þátttaka í verklegum framkvæmdum; tryggja öryggi og fagleg vinnubrögð.
  • Umsjón með gerð og eftirfylgni viðhaldsáætlana eigna sveitarfélagsins.
  • Eftirlit með framgangi annarra framkvæmda til að tryggja að tímarammar, kostnaðaráætlun og gæði verka standist kröfur og skilmála.
  • Samstarf og samskipti við verktaka, forstöðumenn stofnanna, íbúa og birgja.
  • Aðstoð við undirbúning útboða og verksamninga; útbúa lýsingar, taka þátt í mati tilboða og gerð samninga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla í byggingariðnaði eða tengdu fagi nauðsynleg.
  • Reynsla af verkstjórn og stjórn framkvæmda nauðsynleg.
  • Reynsla af samskiptum við verktaka og vinnu að útboðum æskileg.
  • Þekking á gæðakerfum og öryggisreglum í byggingariðnaði kostur.
  • Sterk leiðtogahæfni og reynsla af daglegri verkefnastýringu.
  • Forstöðumaður framkvæmda og veitna skal búa yfir framúrskarandi þjónustulund, samskiptahæfileikum og færni til að eiga samskipti við starfsmenn, iðnaðarmenn og íbúa Húnaþings vestra.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði.
  • Góð almenn kunnátta í íslensku og ensku ásamt tölvufærni.
Advertisement published22. July 2026
Application deadline16. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Búland 3B, 530 Hvammstangi
Type of work
Professions
Job Tags