
Húnaþing vestra
Kemurðu ekki barninu á leikskóla? - við eigum leikskólapláss.
Ertu í of litlu húsnæði? - hjá okkur færðu meira pláss fyrir minni pening.
Fer of mikill tími í umferðarteppur? - hjá okkur er nóg pláss fyrir bílinn þinni.
Og störfin?
Við eigum þau.
Húnaþing vestra er vel staðsett, miðja vegu milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins en aðrir þéttbýliskjarnar Laugarbakki og Borðeyri. Heildarfjöldi íbúa er um 1250 og hefur farið vaxandi undanfarin ár. Uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur verið all nokkur síðustu ár og áform uppi um áframhaldandi húsnæðisuppbyggingu.
Niðurstöður íbúakannana hafa leitt í ljós almenna ánægju íbúa í Húnaþingi vestra með sveitarfélagið sitt og þá þjónustu sem þar er veitt. Til dæmis hafa íbúar verið þeir ánægðustu á landinu með heilbrigðisþjónustu og þjónustu við aldraða, næst ánægðastir á landinu með menningarlíf og tónlistarskóla og þriðju ánægðustu á landinu með vörúrval svo fátt eitt sé nefnt.
Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig og metnaðarfullt leik-, grunn- og tónlistarskólastarf. Gott framboð er af íþrótta-og tómstundastarfi sem er í sífelldri þróun. Sveitarfélagið er útvistarparadís, sundlaugin á Hvammstanga er fyrsta flokks, einnig er þar íþróttahús með þreksal og er félagsstarf afar fjölbreytt. Blómlegt menningarlíf er til staðar, kórar, leikflokkur, dansskóli, alþjóðlegt brúðuleikhús, menningarfélag o.fl.
Hjá sveitarfélaginu starfa um 120 manns.

Umsjónarmaður veitna
Leitum að öflugum aðila til að sjá um veitur sveitarfélagsins. Starfið eru liður í heildarendurskoðun á störfum þjónustumiðstöðvar með það að markmiði að bæta þjónustu við íbúa. Við leitum að einstaklingi sem vill vera hluti af öflugu teymi starfsmanna þjónustumiðstöðvar, viðhalda innviðum sveitarfélagsins og þjónusta íbúa af alúð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með veitum sveitarfélagsins, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu.
- Úttektir og gerð viðhalds- og viðgerðaráætlana veitna í samvinnu við sviðsstjóra.
- Viðhald og lagfæringar á veitum og mat á hvenær kalla þarf til iðnaðarmenn í samráði við sviðsstjóra.
- Samskipti við verktaka varðandi nýframkvæmdir og viðhald veitna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Æskilegt er að umsjónarmaður veitna hafi iðnmenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af sambærilegum verkefnum og reynsla af mati á ástandi og viðhaldsþörf veitna er kostur.
- Umsjónarmaður veitna skal búa yfir framúrskarandi þjónustulund, samskiptahæfileikum og færni til að eiga samskipti við starfsmenn, iðnaðarmenn og íbúa Húnaþings vestra.
- Frumkvæði, skipulagshæfni, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði.
Advertisement published22. July 2026
Application deadline16. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Búland 3B, 530 Hvammstangi
Type of work
Skills
ProactivePositivityHuman relationsIndependencePlanningCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (3)



