Bláa Lónið
Bláa Lónið
Bláa Lónið

Fasteignaumsjónarmaður

Fasteignasvið Bláa Lónsins leitar að öflugum og lausnamiðuðum fasteignaumsjónarmanni til starfa í Svartsengi og Grindavík.

Við leitum að einstaklingi sem hefur góða tækniþekkingu, vinnur skipulega og hefur ánægju af fjölbreyttum verkefnum. Starfið felur í sér daglega umsjón með fasteignum fyrirtækisins í Svartsengi og Grindavík, eftirlit með húsnæði og tæknikerfum ásamt almennu viðhaldi og viðgerðum. Viðkomandi verður hluti af öflugu teymi sem vinnur að því að skapa öruggt, vel við haldið og framúrskarandi umhverfi fyrir gesti og starfsfólk Bláa Lónsins.

Helstu verkefni

  • Daglegt eftirlit með húsnæði, lóðum og tæknikerfum

  • Bregðast við frávikum og sinna almennu viðhaldi og viðgerðum

  • Koma málum í réttan farveg þegar þörf krefur

  • Skrá og fylgja eftir verkefnum í fasteignaumsjónarkerfi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Iðnmenntun eða sambærileg reynsla er skilyrði

  • Góð tækniþekking og hæfni til að sinna fjölbreyttu viðhaldi

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptahæfni

  • Frumkvæði og vilji til að leysa og klára verkefni

  • Góð íslensku-og enskukunnátta er skilyrði

Um vaktafyrirkomulag er að ræða en unnið er samkvæmt vaktakerfi (5-5-4).

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veita mannauðssérfræðingar Bláa Lónsins í síma 420-8800.

Bláa Lónið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Í boði er starf á vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, svo sem heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins og fleira.

Advertisement published16. July 2026
Application deadline10. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Norðurljósavegur 9, 240 Grindavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Building skillsPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags