Verkefnastjóri viðburða
Hefur þú frjóa hugsun? Finnst þér ekkert skemmtilegra en að tala við fólk? Veistu hvað gerir viðburði að góðum viðburðum og ert með tékklistann og tímastjórnunina á hreinu?
Viðreisn er að leita að verkefnastjóra viðburða. Starfið snýst um að virkja hugmyndagleðina í samstarfi við gott fólk, skipuleggja ýmsa fundi og viðburði þannig að þeir verði lifandi og fræðandi. En líka mæta á staðinn og sjá til þess að það sé búið að stóla, gera og græja og ganga frá eftir þörfum.
Í starfinu þarftu að virkja rétta fólkið, eiga í samstarfi við hagaaðila og ýta undir virkt félagsstarf um land allt í stækkandi stjórnmálaflokki. Þú þarft því að hafa framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og vera ófeimin/n/ð við að tala við fólk sem þú hefur ekki hitt áður þannig að þeim líði vel.
Við leitum að einstakling sem hefur brennandi áhuga á samfélagsmálum, pólitík og baráttumálum Viðreisnar. Viðburðir eru oft utan hefðbundins vinnutíma, svo að það er mikilvægt að þú hafir möguleika á sveigjanleika.
- Skipulagning á fundum og viðburðum
- Hvetja til og styðja við grasrótarstarf um land allt
- Tilfallandi textasmíði fyrir stafrænt efni og tölvupósta
- Koma viðburðum á framfæri á samfélagmiðlum
- Önnur tilfallandi verkefni
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla sem nýtist í starfi, svo sem skipulagningu viðburða og að virkja stóra hópa
- Góð tímastjórnun
- Æskilegt að hafa menntun sem nýtist í starfi
- Skapandi hugsun og hugmyndaauðgi
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvufærni, s.s. Google Workspace, Microsoft 365, Canva og Wordpress
- Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð
- Þekking og reynsla af starfi félagasamtaka er mikill kostur
- Áhugi á samfélagsmálum, stjórnmálum og baráttumálum Viðreisnar