Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)

Háskólinn í Reykjavík leitar eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að vera leiðandi í innleiðingu, samhæfingu og stefnumótun í gervigreindarmálum þvert á háskólann. Viðkomandi verður lykilaðili í því að styðja við hvernig HR nýtir gervigreind til að efla nám, kennslu, rannsóknir og aðra starfsemi háskólans og tryggja um leið ábyrga, örugga og árangursríka notkun tækninnar. Um er að ræða nýja stöðu á háskólaskrifstofu og mun viðkomandi taka virkan þátt í að móta starfið, byggja upp verklag, skilgreina áherslur og móta framtíðarsýn starfsins í samstarfi við stjórnendur.

STARFSSVIÐ

  • Starfa náið með stjórnendum og starfsfólki við stefnumótun og innleiðingu er tengist gerð reglna og leiðbeininga um siðferðilega, ábyrga og örugga notkun gervigreindar í háskólasamfélaginu.
  • Vinna að samhæfingu og innleiðingu gervigreindarlausna í starfsemi háskólans, bæði í námi, kennslu, rannsóknum og stoðþjónustu.
  • Greina tækifæri til hagnýtingar gervigreindar í kennslu, námi, rannsóknum og stoðþjónustu og leiða valin þróunar- og innleiðingarverkefni frá hugmynd að framkvæmd.
  • Skipuleggja og leiða vinnustofur og fræðslu fyrir starfsfólk og nemendur um hagnýtingu gervigreindartækni.
  • Samskipti og samstarf við innlenda og erlenda háskóla, hagaðila, tæknifyrirtæki og alþjóðleg tengslanet á sviði gervigreindar.
  • Greina stefnur og þróun í tæknimálum og meta tækifæri og áhættu fyrir starfsemi HR.
  • Önnur tengd verkefni sem til falla.

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, svosem í tölvunarfræði, verkfræði, upplýsingatækni, kennslufræði eða sálfræði.
  • Víðtæk þekking og áhugi á gervigreindartækni, stórum mállíkönum (LLM) og möguleikum þeirra í menntun og rannsóknum.
  • Reynsla af verkefnastjórnun, breytingastjórnun og innleiðingu nýrra tæknilausna.
  • Skilningur á siðfræði gervigreindar, persónuvernd og upplýsingaöryggi í akademísku umhverfi.
  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfileikar ásamt getu til að miðla flóknum tæknilegum hugtökum á skiljanlegan hátt til mismunandi hópa.
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og færni til að leiða þverfaglegt samstarf.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá. Einnig er beðið um kynningarbréf þar sem umsækjendur rökstyðja ástæður þess að vera rétta manneskjan í starfið. Gott væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 18. október en umsóknir verða metnar jafnóðum og þær berast.

Nánari upplýsingar veitir Jón Haukur Arnarson framkvæmdastjóri rekstrar ([email protected]) og Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir skrifstofustjóri háskólaskrifstofu ([email protected]), eða mannauður, ([email protected]). Umsóknum skal skilað á umsóknarvef HR. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Advertisement published1. October 2026
Application deadline18. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags