atNorth
atNorth
atNorth

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)

atNorth á Reykjanesi leitar að öflugum sérfræðingi til að tryggja áreiðanlegan rekstur og áframhaldandi þróun stjórn- og eftirlitskerfa gagnaversins. Starfið felur í sér umsjón með PLC-, SCADA- og BMS-kerfum, viðhald og bilanagreiningu, ásamt innleiðingu tæknilegra umbóta sem styðja við öruggan og skilvirkan rekstur.

Við leitum að aðila með sterkan tæknilegan grunn, góða samskiptahæfni og getu til að vinna sjálfstætt og þvert á teymi. Unnið er í dagvinnu á virkum dögum með þátttöku í bakvöktum samkvæmt nánara fyrirkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með stjórn-, eftirlits- og mælikerfum gagnaversins
  • Uppsetning, viðhald, bilanagreining og þróun PLC-, SCADA- og BMS-kerfa
  • Skipulagning og framkvæmd fyrirbyggjandi og leiðréttandi viðhalds
  • Umsjón með mælikerfum raforkudreifingar og kvörðun mælitækja
  • Framkvæmd tæknilegra umbóta og samþykktra kerfisuppfærslna
  • Stuðningur við rekstur og úrlausn tæknilegra áskorana
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði verkfræði, iðnfræði eða sambærilegra tæknigreina
  • Sveinspróf er kostur
  • Reynsla af stjórnkerfum, rekstri og viðhaldi tæknibúnaðar ásamt þekkingu á netkerfum
  • Þekking á PLC-, SCADA- og/eða BMS-kerfum
  • Þekking á samskiptastöðlum á borð við Modbus TCP/IP eða sambærilegum lausnum
  • Reynsla af Schneider PME, EBO eða Janitza GridVis er kostur
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi
  • Sjálfstæð skipulögð vinnubrögð og frumkvæði
  • Umbótahugarfar, öryggisvitund og þjónustulund
  • Góð enskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

atNorth er leiðandi norrænt fyrirtæki á sviði gagnaversþjónustu sem býður upp á sjálfbæra og hagkvæma ofurtölvuþjónustu fyrir mörg af fremstu tæknifyrirtækjum heims. Höfuðstöðvar atNorth eru í Hafnarfirði en fyrirtækið rekur starfsemi þvert á Norðurlöndin.

Hjá atNorth koma saman framúrskarandi tækniþekking og vinnustaðamenning sem byggir á samvinnu, ábyrgð og trausti. Fyrirtækið leggur áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þróast í starfi, taka frumkvæði og hafa raunveruleg áhrif á starfsemina.

Með því að ganga til liðs við alþjóðlegt teymi atNorth færð þú tækifæri til að taka þátt í mótun framtíðar sjálfbærra stafrænna innviða. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins www.atnorth.com. 

Advertisement published1. October 2026
Application deadline12. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Sjónarhóll 6, 235 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags