FSRE
FSRE

Verkefnastjórar á framkvæmdasviði

Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) leiða verkefnastjórar framkvæmdir sem móta aðstöðu m.a. fyrir heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, menningu og náttúruvernd um allt land. Nú leitum við að metnaðarfullum og lausnamiðuðum verkefnastjórum í öflugan hóp á framkvæmdasviði. Verkefnin eru af ólíkri stærð og flækjustigi, og ábyrgð og umfang taka mið af reynslu hvers og eins. Því eiga bæði verkefnastjórar sem eru að byggja upp reynslu sína og reyndir verkefnastjórar erindi í hópinn.

Sem verkefnastjóri leiðir þú fjölbreytt verkefni frá hönnun til afhendingar mannvirkja, allt frá nýbyggingum og endurbótum á húsnæði ríkisins til uppbyggingar ofanflóðavarna og náttúruinnviða. Meðal stærri verkefna sviðsins um þessar mundir eru nýtt öryggisfangelsi, verknámshús Fjölbrautaskólans í Breiðholti og ný hjúkrunarheimili að Ási, við Nauthólsveg og á Húsavík.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjórn í mannvirkjagerð á stigi hönnunar og/eða framkvæmda, með fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð verkefna 

  • Gerð þarfa- og kostnaðargreininga og kostnaðar- og tímaáætlana 

  • Umsjón með útboðsferli framkvæmdaverkefna 

  • Mat á viðhalds- og endurbótaþörf fasteigna í samráði við önnur svið FSRE 

  • Þátttaka í þróun lausna í samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunarinnar 

  • Þátttaka í framþróun verkefnastjórnunar, sem og annarra umbótaverkefna 

  • Yfirferð og samþykkt reikninga 

  • Samskipti við verktaka, hönnuði, birgja og notendur vegna framkvæmda og hönnunar 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 

  • Menntun, vottun eða reynsla í verkefnastjórn 

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og rík hæfni í teymisvinnu 

  • Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð, þjónustumiðuð vinnubrögð 

  • Geta til að vinna undir álagi og halda utan um mörg verkefni samtímis 

  • Góð tök á Microsoft 365 (t.d. Word, Excel og PowerPoint) 

  • Góð tök á Microsoft Project 

  • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti 

Eftirfarandi telst til kosta 

  • Menntun á sviði mannvirkjagerðar (t.d. verk-, tækni-, byggingafræði eða arkitektúr) 

  • Reynsla af hönnun og/eða verklegum framkvæmdum 

  • Þekking á upplýsingalíkönum (BIM) 

  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu 

  • Þekking á stafrænni þróun 

Fríðindi í starfi

Hvað við bjóðum 

  • Verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma 

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snerta flest svið samfélagsins 

  • Stuðning við þekkingaröflun og starfsþróun, meðal annars í gegnum alþjóðlegt tengslanet 

  • Fjölskylduvænan vinnustað þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og góða vinnustaðamenningu 

Advertisement published4. August 2026
Application deadline14. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags