Sjúkraliðafélag Íslands
Sjúkraliðafélag Íslands

Verkefnastjóri kjara- og réttindamála

Sjúkraliðafélag Íslands leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum verkefnastjóra kjara- og réttindamála til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði kjarasamninga, réttindamála og þjónustu við félagsmenn.

Starfið felur í sér faglega ábyrgð á vinnu félagsins á sviði kjara- og réttindamála, undirbúning og þátttöku í kjaraviðræðum, ráðgjöf til félagsmanna og samstarf við trúnaðarmenn, samningsaðila og samstarfsaðila. Verkefnastjóri ber ábyrgð á þjónustu og ráðgjöf við félagsmenn um kjör þeirra og réttindi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Veita félagsmönnum ráðgjöf og svara fyrirspurnum um kjara- og réttindamál.
  • Tryggja að félagsmönnum sé veitt fagleg, rétt og góð þjónusta varðandi réttindi, kjarasamninga og framkvæmd þeirra.
  • Annast túlkun kjarasamninga og vinna úr erindum tengdum réttindum, greiðslum og ágreiningsmálum.
  • Undirbúa gögn, greiningar og samanburð fyrir kjaraviðræður.
  • Taka þátt í mótun kröfugerðar og undirbúningi kjaraviðræðna í samstarfi við formann og kjaramálanefnd.
  • Vera tengiliður við trúnaðarmenn og veita þeim stuðning í kjara- og réttindamálum.
  • Halda utan um samskipti við samningsaðila, þar á meðal sveitarfélög, stofnanir og samtök vinnuveitenda.
  • Taka þátt í samstarfi við BSRB og aðildarfélög þess um málefni sem tengjast vinnumarkaði og kjaramálum.
  • Vinna að fræðslu, kynningum og upplýsingagjöf til félagsmanna og trúnaðarmanna.
  • Fylgjast með þróun á vinnumarkaði, launaþróun og lagabreytingum sem hafa áhrif á réttindi félagsmanna.
  • Styðja við framkvæmd ferla vegna vinnudeilna og samskipti við Ríkissáttasemjara eftir því sem við á.
Advertisement published9. July 2026
Application deadline20. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Grensásvegur 16, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Project management
Professions
Job Tags