STILL VIVID
STILL VIVID
STILL VIVID

Skipulagsstjóri í kvikmyndaframleiðslu

STILL VIVID leitar að aðila til að taka að sér að 70-100% starf á sviði skipulagsstjórnunnar og almennrar aðstoðar við framleiðanda við vinnslu á kvikmyndaverkefnum á öllum stigum frá þróun og fjármögnun til framleiðslu og dreifingar, ásamt daglegum rekstri fyrirtækisins.

Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem reynir á skipulag, frumkvæði, útsjónarsemi og góð mannleg samskipti. Skipulagsstjóri vinnur með framleiðanda og fær innsýn í öll stig kvikmyndaframleiðslu. Starfið er að mestu leyti unnið frá skrifstofu STILL VIVID á Gufunesinu, en einnig koma tímabil þar sem starfið færist yfir á kvikmyndasett annars staðar á landinu, og mögulegt er einnig að vinna starfið að hluta til í fjarvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón yfir skipulagi almennt í kringum framleiðslu kvikmynda

  • Bókun á ferðum, bílaleigum, gistingum, o.s.frv.

  • Samskipti við leikara, tökulið, birgja, innlenda og erlenda samstarfsaðila

  • Textaskrif fyrir umsóknir í kvikmyndasjóði, eftirfylgni og skilagreinar

  • Aðstoð við fjármögnun, gerð kostnaðaráætlana og uppgjörs

  • Gagnasöfnun, skjölun, skjalastýring og utanumhald gagna

  • Aðstoð við markaðsmál og gerð samfélagsmiðlaefnis
  • Ýmis tilfallandi verkefni sem viðkoma framleiðslu kvikmynda og rekstri skrifstofu

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi skipulagshæfni, frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð

  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Menntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi

  • Áhugi á kvikmyndum og kvikmyndagerð

  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Bílpróf og bifreið til umráða

  • Góð almenn tölvukunnátta

Advertisement published15. July 2026
Application deadline3. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Gufunes , 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.CinematographyPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Event managementPathCreated with Sketch.Customer service
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags