
Rangárþing Ytra
Rangárþing ytra er fallegt, framsækið og víðfeðmt sveitarfélag í hjarta Suðurlands. Starfsstöð byggingarfulltrúa er á Hellu en þaðan er aðeins um klukkustundarakstur á Höfuðborgarsvæðið. Íbúar sveitarfélagsins eru um 2000 og samfélagið er fjölbreytt og iðandi. Mikil uppbygging er í gangi á svæðinu og t.a.m. er verið að stækka skóla og leikskóla og byggja upp gervigrasvöll og fleiri íþróttamannvirki. Einnig eru að hefjast stórar virkjanaframkvæmdir innan marka sveitarfélagsins sem hafa í för með sér mikla uppbyggingu og umsvif.
Í Rangárþingi ytra er fjölbreytt úrval búsetukosta, gott aðgengi að leikskólaplássum og mjög öflugir grunnskólar. Framboð íþrótta, tómstunda og menningarviðburða er gott og tækifæri til útivistar í náttúrunni eru nær óþrjótandi.
Verkefnastjóri skrifstofu þjónustumiðstöðvar
Rangárþing ytra auglýsir laust til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra skrifstofu þjónustumiðstöðvar.
Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa að rekstri og þjónustu sveitarfélagsins. Þar er lögð áhersla á góða þjónustu, skilvirka stjórnsýslu og öflugt samstarf.
Leitað er að skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum og vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu ört vaxandi sveitarfélags.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með málakerfi þjónustumiðstöðvar (ONE).
- Þjónusta vegna reksturs vatnsveitu.
- Reikningagerð fyrir þjónustumiðstöð og skipulags- og byggingaembætti.
- Vinnsla almennra umsókna og afgreiðsla erinda.
- Skipulag seyrulosunar og samskipti við íbúa og verktaka.
- Umsjón með vinnuskóla sveitarfélagsins.
- Undirbúningur funda í samstarfi við forstöðumann.
- Móttaka og þjónusta við íbúa, símsvörun og samskipti.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Iðn- eða tæknimenntun kostur.
- Reynsla af verkefnastjórnun kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
- Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Góð tölvukunnátta og rík hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Advertisement published23. July 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Eyjasandur 2, 850 Hella
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

TDK Foil leitar eftir starfsmanni í móttöku fyrirtækisins á Akureyri
TDK Foil Iceland ehf

Þjónustufulltrúi - Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Finnst þér gaman að greina gögn og vinna með fólki?
Dómsmálaráðuneytið

Verkefnisstjóri barna-, ungmenna- og frístundastarfs
Húnaþing vestra

Verkefnisstjóri menningar, viðburða og samfélagsstarfs
Húnaþing vestra

Sölufulltrúi ELKO Granda-helgarstarf
ELKO

Söluráðgjafi með tæknilega innsýn óskast - Frumkvæði og þjónustulund
NTI ehf. (NTI á Íslandi)

Þjónustufulltrúi - Móttaka
Icetransport

Tax Free operations executive
Planet Payment Iceland ehf.

Internal communications and culture manager
Alvotech hf

Bókari á fjármálasviði
Avis og Budget

Starfsmaður fasteignaumsjónar
Listaháskóli Íslands