Akureyri
Akureyri
Akureyri

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Verkefnastjóri gæðamála og skólaþróunar

Skrifstofa fræðslu- og lýðheilsusviðs óskar eftir verkefnastjóra gæðamála og skólaþróunar. Um er að ræða ótímabundið starf í 100% starfshlutfalli og unnið er í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.

Skrifstofan er stoðdeild á fræðslu- og lýðheilsusviði. Innan hennar er höfð yfirumsjón og eftirlit með rekstrareiningum sviðsins á sviði skólamála, skólaþjónustu, tómstunda-, forvarna- og íþróttastarfs, auk þess sem veitt er ráðgjöf á þeim sviðum.

Verkefnastjóri gæðamála og skólaþróunar hefur yfirumsjón með gæðamálum í leik- og grunnskólum. Veitir stuðning og hefur eftirlit með innra mati leik- og grunnskóla. Hefur yfirumsjón með innritun í leikskóla og málaflokki dagforeldra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir stuðning og hefur eftirlit með innra mati leik-, grunn- og tónlistarskóla með heimsóknum og samstarfi við gæðaráð skólanna.
  • Starfar með stjórnendum og gæðaráðum leik- og grunnskóla að því að uppfylla viðmið menntastefnu Akureyrarbæjar.
  • Styður við og fylgir eftir gæðamati á forvarnar- og frístundamálum Akureyrarbæjar.
  • Aðstoðar við að útbúa matstæki vegna innra mats og vistun matstækja á sameiginlegu svæði.
  • Starfar með verkefnastjórum leik- og grunnskóla og málefna barna og unglinga við þróun skóla- og frístundastarfs.
  • Styður sviðsstjóra, verkefnastjóra og skólastjórnendur við þróunarverkefni.
  • Hefur yfirumsjón með innritun og skráningu nemenda í leikskóla Akureyrarbæjar í samstarfi við skólastjóra leikskóla.
  • Hefur yfirumsjón með málaflokki dagforeldra og stýrir dagforeldrateymi á fræðslu- og lýðheilsusviði. Sinnir heimsóknum og ráðgjöf til dagforeldra.
  • Aðstoðar við umsóknir á styrkjum til þróunarverkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
  • Leyfisbréf til kennslu er kostur.
  • ​Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Reynsla og/eða þekking af gæðamati og þróunarstarfi æskilegt.
  • Reynsla og/eða þekking af þróunarstarfi í leik- og/eða grunnskólum kostur.
  • ​Reynsla og/eða þekking af þróunarstarfi í frístunda- og tómstundamálum kostur.
  • ​Reynsla af starfi innan skólakerfisins og þekking á farsælum starfsháttum kostur.
  • Þekking á framkvæmd innra mats og umbótum í skólastarfi kostur.
  • ​Lausnamiðuð hugsun og metnaður.
  • Samskiptafærni, sveigjanleiki og víðsýni.
  • Góð tölvukunnátta og færni í að tileinka sér nýjungar á því sviði.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og góð enskukunnátta í riti.​
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published28. July 2026
Application deadline10. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags