MEKÓ
MEKÓ
MEKÓ

Verkefna- og viðburðastjóri menningarmála í Kópavogi

Kópavogsbær leitar að kraftmiklum og hugmyndaríkum verkefna- og viðburðastjóra menningarmála með skýra framtíðarsýn og brennandi áhuga á listum og menningu. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í að móta og efla menningarlíf bæjarins með framsæknum og skapandi hætti.

Kópavogsbær er kunnur fyrir öflugt og ríkt menningarstarf sem sniðið er fyrir alla aldurshópa. Kjarnastarfsemin fer fram í menningarhúsunum sem staðsett eru í hjarta bæjarins en þau eru Gerðarsafn, Salurinn, Bókasafn og Náttúrufræðistofa. Nálægð húsanna við líflegt útivistarsvæðið skapar eftirsóknarvert samtal og mýmörg tækifæri til ólíkra menningarviðburða.

Verkefna- og viðburðastjóri mótar og ber ábyrgð á skipulögðu menningarstarfi í samráði við forstöðumann menningarmála. Hann starfar einnig náið með forstöðumönnum annarra menningarhúsa bæjarins og verkefnastjórum þeirra við skipulagða viðburði og mótun nýrra verkefna. Verkefnastjóri sér um skipulagningu hátíða bæjarins og ber faglega ábyrgð á þeim. Hann leiðir einnig fræðslustarf og heimsóknir barna af öllum skólastigum í menningarhúsin.

Meðal þeirra viðburðaraða sem nú eru starfræktar í menningarhúsunum eru fjölskyldustundir, menning á miðvikudögum og foreldramorgnar. Þær reglubundnu hátíðir sem fram fara í bænum eru Ljóðstafur Jóns úr Vör, Barnamenningarhátíð, Safnanótt, 17. júní, haustkarnival og aðventuhátíð.

Leitað er eftir einstaklingi sem er vakandi fyrir nýjum tækifærum og skapandi leiðum til að efla og virkja enn frekar menningar- og listalíf bæjarins.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður menningarmála en málaflokkurinn heyrir undir skrifstofu umbóta- og þróunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á og stýrir sameiginlegum viðburðum og hátíðum menningarhúsanna í samstarfi við forstöðumann menningarmála
  • Skipuleggur og ber ábyrgð á markvissri menningarfræðslu fyrir nemendur af öllum skólastigum í Kópavogi með áherslu á börn og ungmenni
  • Er tengiliður menningarhúsa bæjarins við menntasvið, skóla, félagsmiðstöðvar, tónlistarskóla, framhaldsskóla, grasrótarsamtök og aðra þá sem sinna menningu og listum innan bæjarins
  • Leiðir og stýrir hópi viðburðafulltrúa menningarhúsanna og skipuleggur viðburða- og hátíðardagskrá fram í tímann í samstarfi við þá
  • Er tengiliður menningarmálaflokksins við systurstofnanir á höfuðborgarsvæðinu og víðar
  • Í samvinnu við forstöðumann menningarmála ber verkefnastjóri fjárhagslega ábyrgð á rekstri verkefna sem undir hann heyra, sér um fjárhagsáætlunargerð og um gerð samninga við verktaka
  • Leiðir gerð árlegrar skýrslu um starfsemi menningarmála í Kópavogi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, menntun á sviði lista og/eða menningar er kostur
  • Reynsla og/eða víðtæk þekking á sviði lista og menningarmála
  • Reynsla af verkefnastjórnun og skipulagningu dagskrárviðburða
  • Reynsla af því að vinna með börnum og ungmennum er kostur
  • Reynsla af fjárhagsáætlunargerð, stefnumótunarvinnu og skýrslugerð er kostur
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Hugmyndaauðgi, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Færni til að leiða saman ólíka hópa og verkefni
  • Geta til að vinna fjölbreytileg störf undir álagi og í sumum tilfellum utan hefðbundins dagvinnutíma
  • Hæfni til að setja fram texta og tal á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Advertisement published11. June 2025
Application deadline4. July 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags