
Deildarstjóri umbóta og upplýsingamála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur leitar að öflugum leiðtoga í nýtt starf deildarstjóra á skrifstofu skipulags- og byggingarmála.
Deildin ber ábyrgð á upplýsingakerfum, verkferlum og að innleiða umbætur og lausnir er varða skipulags og byggingarmál (s.s. landupplýsingakerfi, borgarvefsjá, umsóknarkerfi vegna framkvæmdaleyfa, staðlaðra umsagna o.fl.). Stýrir fræðslu og upplýsingagjöf til hagaðila varðandi ferli skipulags- og byggingarmála og afgreiðir erindi þar um. Heldur utan um grenndarkynningar, smærri deiliskipulagsbreytingar, umsagnir til opinberra aðila og almenn afgreiðslumál skrifstofunnar. Ber ábyrgð á að málsmeðferð, upplýsingagjöf og áherslur séu í samræmi við stefnu borgaryfirvalda varðandi stafrænar lausnir og í takt við vandaða stjórnsýsluhætti og markmið sviðsins um framúrskarandi þjónustu.
Leitað er að framsæknum einstaklingi með ríka forystu- og samskiptahæfileika, frumkvæði og þjónustumiðaða hugsun sem hefur brennandi áhuga á að innleiða umbætur og nýjar tæknilausnir í þjónustu sviðsins í skipulags og byggingarmálum.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á þverfaglega teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri skipulags-og byggingarmála.
- Ábyrgð á faglegu starfi, uppbyggingu og skipulagi deildar og að málsmeðferð og áherslur verkefna séu í samræmi við stefnu borgaryfirvalda í umhverfis- og skipulagsmálum.
- Ábyrgð á umbótaverkefnum og eflingu stafrænna þjónustuleiða.
- Leiðandi hlutverk við þróun verkefnamiðaðrar teymisvinnu.
- Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð skrifstofu skipulags og byggingarmála.
- Forsvar fyrir þjónustu, fagleg stjórnun mannauðs, fjármála, skipulags og daglegra verkefna
- auk ábyrgðar á rekstri.
- Leiðir áætlanagerð, skipulagningu og markmiðasetningu og tryggir að unnið sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið umhverfis- og skipulagssviðs.
- Samskipti og samráð við íbúa, hagsmunaaðila, ráðgjafa og stofnanir, nefndir og ráð, skrifstofur og deildir innan og utan borgarkerfis.
- Háskólapróf á framhaldsstigi sem nýtist í starfi.
- Viðbótamenntun á sviði stjórnunar, verkefnastjórnunar eða opinberrar stjórnsýslu kostur.
- Farsæl reynsla á starfssviðinu áskilin.
- Hæfni til að setja fram skýr markmið, forgangsraða verkefnum og fylgja eftir.
- Farsæl reynsla af stefnumótun, verkefnastjórnun og innleiðingu umbótaverkefna.
- Mjög góð tölvu- og tæknikunnátta og umbótamiðuð hugsun varðandi tæknilausnir.
- Góðir hæfileikar til samskipta og samvinnu og hæfni til að skapa öfluga liðsheild.
- Greiningar- og skipulagshæfni, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
- Reynsla af stjórnun og áætlanagerð og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Þekking á skipulags- og byggingarlögum og viðkomandi reglugerðum er kostur.
- Íslenskukunnátta C1-C2 skv. samevrópskum tungumálaramma og enskukunnátta B2-C1.













