Íslandshótel
Íslandshótel
Íslandshótel

Grafískur hönnuður

Við hjá Íslandshótelum leitum að hugmyndaríkum og metnaðarfullum grafískum hönnuði til að ganga til liðs við markaðsteymið okkar. Við leitum að einstakling sem sýnir frumkvæði, er með gott auga fyrir smáatriðum og hefur gaman af fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.

Helstu verkefni:

  • Hönnun og uppsetning bæklinga, auglýsinga, matseðla og kynningarefnis
  • Hönnun á efni fyrir auglýsingaherferðir, viðburði og sýningar
  • Hönnun og þróun á upplýsingagrafík, merkingum, skýrslum og vefborðum
  • Mörkun, vörumerkjagerð og útlitshönnun fyrir samfélagsmiðla
  • Hönnun fyrir innanhús- og utanhússmerkingar, bása og önnur sérverkefni

Hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla í grafískri hönnun
  • Framúrskarandi færni í Adobe Creative Suite (Illustrator, InDesign, Photoshop)
  • Þekking á prent-, vef- og samfélagsmiðlum
  • Reynsla í ljósmyndun og á hreyfigrafík er kostur
  • Sköpunargleði, frumkvæði og auga fyrir smáatriðum
  • Góð samskiptahæfni og færni til að vinna sjálfstætt og í teymi

Við bjóðum:

  • Fullt starf í lifandi og skapandi starfsumhverfi
  • Fjölbreytt og spennandi verkefni með sterkum vörumerkjum
  • Frábært samstarfsfólk og tækifæri til vaxtar

Sendu okkur ferilskrá og sýnishorn af verkum þínum fyrir 20 júní.

Við tökum vel á móti öllum sem hafa áhuga og sýna frumleika og metnað í verkum sínum.

Nánari upplýsingar veitir Rakel Ármannsdóttir, Markaðsstjóri [email protected]

Lærðu meira um Íslandshótel

Advertisement published30. May 2025
Application deadline13. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags