
Hér&Nú
Hér&Nú er ein af elstu og virtustu auglýsinga- og markaðsráðgjafastofum landsins. Allt frá 1990 hefur stofan haft frumkvæði í hönnun, strategískri hugsun og árangursmiðuðum auglýsingum.
Hér&Nú er hönnunardrifin auglýsingastofa. Í markaðssamskiptum opnar skapandi hönnun nýjar leiðir. Í krafti hennar mótum við frumkvæðisdrifin samskipti við viðskiptavini og vinnum þannig sameiginlega úr reynsluheimi okkar.
Samvinna sem á að vara til langs tíma hefst með greiningu og markvissri markmiðasetningu. Herferðir eru ágætar en þær eru orrustur. Stríðið um neytendur er þúsund ára stríð. 360° aðferðarfræði okkar er hægt að útskýra í löngu máli eða benda á metfjölda árangursverðlauna sem staðfestingu á því hvernig aðferðarfræðin virkar.
En við erum ekki bara auglýsingastofa. Við veitum þjónustu á borð við:
- Auglýsingar
- Almannatengsl
- Birtingar
- Nýmiðlun

Google Ads sérfræðingur
Hér&Nú leitar að einstaklingi með sérþekkingu og reynslu af Google Ads. Við leitum að einstaklingi sem langar að takast á við síbreytilegan og ört stækkandi heim stafrænna markaðsaðgerða. Viðkomandi þarf að búa að þekkingu, sýn, getu og vilja til að ná árangri í uppbyggingu markaðsmála fyrir fjölbreytta flóru fyrirtækja og fólks. Framúrskarandi samkiptahæfni sem nýtist í starfi er mikilvæg.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Ólafsson ([email protected]), framkvæmdastjóri birtinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn samskipti við viðskiptavini, með tilheyrandi þarfa- og markhópagreiningu.
- Undirbúa, ákveða, setja upp og fylgja eftir auglýsinga- og markaðsherferðum á Google.
- Kafa í Google Ads og greina tækifæri sem hægt er nýta.
- Greina niðurstöður herferða, gögn og mismunandi strategíur til að veita bestu mögulegu ráðgjöf sem hámarkar ROMI-árangur.
- Vinna að áætlun og skilvirkni í nýtingu birtingafjármagns.
- Vinna með markaðsráðgjafa-, hugmynda- og hönnunarteymi að þróun herferða og auglýsinga.
- Fylgjast með, læra, þróa og sækjast eftir þekkingu á leiðandi tækni.
- Viðskiptaöflun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af Google Ads skilyrði.
- Góð þekking á tölfræði og tölfræðigreiningu auk getu til að vinna með tölfræðigreiningartæki (t.d. Google Analytics, Accuranker/Semrush, Looker Studio)
- Reynsla af umsjón birtinga á stafrænum miðlum.
- Reynsla af Facebook Business & Ads Manager kostur.
- Ástríða fyrir auglýsingamálum og gott auga fyrir straumum og stefnum.
- Miklir samskiptahæfileikar og geta til að vinna í hóp.
Advertisement published30. May 2025
Application deadline12. June 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Bankastræti 9, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
FacebookProactiveGoogleGoogle AnalyticsInstagramHuman relationsIndependencePlanning
Professions
Job Tags
Similar jobs (9)

Viðskiptastjóri (Account Manager)
Snæland Grímsson ehf

Vef- og markaðssérfræðingur
Avis og Budget

Umsjón með samfélagsmiðlum og ungliðastarfi
Amnesty International

Systems Administrator / Kerfisstjóri
RVX Productions ehf.

Grafískur hönnuður
Íslandshótel

Digital Marketing specialist / Markaðssérfræðingur
Hertz Bílaleiga

Markaðsfulltrúi
BIOEFFECT ehf.

Sölufulltrúi Dagvöruverslanna
Rún Heildverslun

Markaðsstjóri
Deluxe Iceland