
Sölufulltrúi Dagvöruverslanna
Erum við að leita af þér?
Rún Heildverslun leitar að að öflugum og metnaðarfullum liðsfélaga í starf sölufulltrúa Dagvöruverslanna.
Sölufulltrúar eru í miklum samskiptum við viðskiptavini fyrirtækisins og ábyrgir fyrir sölu og samskiptum. Sölufulltrúi vinnur náið með sölustjóra.
Við leitum að jákvæðum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum liðsfélaga sem brennur fyrir góðum viðskiptasamböndum, sölu og vill taka þátt í að byggja upp traust og faglegt samband við viðskiptavini okkar um land allt. Þarf að vera ófeiminn og vilja til að hella sér í verkefnin.
· Sala á vörum fyrirtækisins til viðskiptavina
· Framstillingar og kynningar á vörum
· Skipulagning söluferða í samráði við sölustjóra
· Að efla og viðhalda tengslum við viðskiptavini
· Reynsla af sölustörfum er æskileg
· Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
· Mjög góðir samskiptahæfileikar og lausnarmiðað viðhorf
· Góð almenn tölvukunnátta
· Ökuréttindi













