Amnesty International
Amnesty International
Amnesty International

Umsjón með samfélagsmiðlum og ungliðastarfi

Við leitum að fjölhæfri manneskju sem er fær um að sjá tímabundið um tvö ólík verksvið hjá Íslandsdeild Amnesty International.

Viðkomandi ber ábyrgð á því að þróa og innleiða samfélagsmiðlastefnu deildarinnar. Starfið felur í sér að skapa efni og sjá um auglýsingar á leitarvélum og samfélagsmiðlum, samkvæmt áætlunum, verkefnum og herferðum deildarinnar.

Umsjón með ungliðahreyfingunni felur í sér skipulag og utanumhald með ungliðahreyfingu Íslandsdeildar Amnesty International. Ábyrgð á samfélagsmiðlum og markaðsmálum er varða ungliðahreyfinguna til að stuðla að nýliðun og eflingu hennar. Ábyrgð á aðgerðum á götu úti þar sem er veitt rými fyrir sköpunarkraft og hugmyndaauðgi aðgerðasinna innan ramma Amnesty International.

Athugið að um tímabundna stöðu er að ræða, til eins árs. Innan þess tíma er gert ráð fyrir um 6 vikna verkefni sem felur í sér umsjón með ungliðahreyfingu deildarinnar.

Starfstímabil ágúst 2025 - ágúst 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróa, innleiða og stýra samfélagsmiðlastefnu deildarinnar. 

  • Framleiðsla á áhugaverðu efni (grafík, myndbönd o.fl.) og textagerð fyrir samfélagsmiðla, þar á meðal Facebook, Instagram, Twitter, LinkedIn o.fl. 

  • Taka þátt í hugmyndavinnu fyrir herferðir og fjáröflun á samfélagsmiðlum. 

  • Birta efni vegna viðburða og herferða samkvæmt áætlunum. 

  • Innsýn til að bæta samfélagsmiðla- og markaðsstarfsemi. 

  • Samskipti við fylgjendur, svara fyrirspurnum og veita upplýsingar. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gott vald á textasmíði á íslensku og ensku. 

  • BA-gráða í markaðssetningu, samskiptum eða tengdum greinum. 

  • Reynsla af myndbandsgerð fyrir samfélagsmiðla. 

  • Mikill skilningur á mismunandi samfélagsmiðlum og markhópum þeirra. 

  • Þekking á Meta og Google auglýsingakerfum. 

  • Starfsreynsla af stafrænni markaðssetningu er kostur. 

  • Reynsla af ungliðastarfi. 

  • Skipulagshæfileikar. 

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar bæði í ræðu og riti. 

  • Á auðvelt með að koma í mynd á samfélagsmiðlum deildarinnar. 

Fríðindi í starfi
  • Jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi 

  • Sveigjanlegt, skapandi og ábyrgðarfullt starf 

  • 34 klukkustunda vinnuvika 

Advertisement published31. May 2025
Application deadline15. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.BrandingPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.TwitterPathCreated with Sketch.Event management
Work environment
Professions
Job Tags