FOB ehf.
FOB ehf.

Vantar NPA aðstoðarvin í 20-25% dagvinnu

Starfshlutfall og vaktir skv.nánara samkomulagi.

Viltu koma í NPA aðstoðarvinahópinn minn ? Ég er 23 ára strákur að leita að góðum einstaklingi í viðbót við minn frábæra NPA aðstoðarvinahóp, en á mínu heimili köllum við hópinn í kringum mig NPA aðstoðarvini, því við erum að gera svo margt skemmtilegt saman eins og vinir gera, en auk þess hjálpa vinir mínir mér með aðstoð við allar skyldur og þarfir dagslegs lífs því ég er í hjólastól og þarf mikla aðstoð.

Áhugamál mín eru fjölbreytt. Mér finnst mjög gaman að fara á tónleika, í leikhús, bíó, út að borða, chilla heima í góðum félagsskap, fara í ferðalög, bæði innanlands og utan ofl.ofl.

Samvera mín og NPA vina minna er virkilega gefandi og skemmtileg, en eðlilega mikil ábyrgð líka. Ég er búinn að vera svo heppinn að eiga sömu NPA vini í fjöldamörg ár.

Við skiptum föstum NPA vöktum niður á morgun, dag, kvöld og helgarvaktir og NPA vinir mínir eru einkum ungt fólk í hlutastarfi sem hitta mig á föstum fyrirfram settum föstum vöktum, sumir oft eða nokkrum sinnum í viku aðrir minna, allt eftir samkomulagi.

Ég á minn eigin bíl og er því nauðsynlegt að NPA vinir mínir hafi bílpróf, tali íslensku, eru með hreint sakavottorð og séu upplýstir og meðvitaðir um að notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) byggist á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf – sjá nánar á www.npa.is

Advertisement published18. October 2024
Application deadline18. November 2024
Language skills
IcelandicIcelandicExpert
Location
Hlíðasmári 9, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Punctual
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags