Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hey! Laust starf í skemmtilegum íbúðakjarna

Íbúðakjarninn Rangársel 16-20 óskar eftir starfsfólki í skemmtilegt og krefjandi starf með fólki með þroskaskerðingu og skildar raskanir. Leitast er eftir að skapa jákvætt og heilsueflandi starfsmannaumhverfi sem skilar sér í þjónustu við íbúa.

Tekið er vel á móti nýju starfsfólki og fá allir aðlögunartíma. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og Bjargráðakerfinu Björg.

Um er að ræða hlutastarf og staðan er laus strax. Íbúakjarninn Rangársel 16-20 er sólahringsheimili og um er að ræða vaktavinnu dag-, kvöld- og helgarvaktir og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi fyrir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Gilt ökuskírteini.
Advertisement published17. October 2024
Application deadline31. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicVery good
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Punctual
Professions
Job Tags