Húnabyggð
Húnabyggð

Umsjón með upplýsingatæknimálum Húnabyggðar

Húnabyggð leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í 100% starf til að hafa umsjón með upplýsingatæknimálum sveitarfélagsins . Starfsstöð er á Blönduósi.

Starfið heyrir undir teymisstjóra skrifstofu Húnabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forysta við innleiðingu gervigreindarlausna í starfsemi sveitarfélagsins.  

  • Eftirfylgni með upplýsingaöryggi, aðgangsstýringum og persónuvernd í samstarfi við viðeigandi ábyrgðaraðila. 

  • Samræming upplýsingatæknimála á starfsstöðvum sveitarfélagsins. 

  • Umsjón með vefmálum, upplýsingakerfum og þróun veflausna. 

  • Eftirlit með virkni og viðhaldi tölvubúnaðar, hugbúnaðar og nettenginga. 

  • Dagleg tölvuþjónusta, tæknileg aðstoð og leiðbeiningar til starfsfólks. 

  • Samræming aðkeyptrar þjónustu og innkaupa auk eftirfylgni með þjónustusamningum, endurnýjun og skráningu búnaðar og hugbúnaðar. 

  • Þátttaka í rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð vegna upplýsingatæknimála. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði upplýsingatækni eða önnur menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi. 

  • Þekking á tölvubúnaði, hugbúnaði, netkerfum og almennri tölvuþjónustu. 

  • Þekking á Microsoft 365 og öðrum algengum upplýsingakerfum. 

  • Reynsla af tæknilegri aðstoð og þjónustu við notendur auk þekkingar á vefumsjón og innleiðingu tæknilausna. 

  • Þekking á upplýsingaöryggi, aðgangsstýringum og persónuvernd . 

  • Reynsla af samræmingu verkefna og samskiptum við þjónustuaðila. 

  • Góð samskipta- og skipulagshæfni ásamt ríkri þjónustulund. 

  • Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að forgangsraða verkefnum og finna hagkvæmar lausnir. 

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti. 

Advertisement published27. November 2026
Application deadline8. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Húnabraut 5, 540 Blönduós
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.IT project management
Professions
Job Tags