

Sérfræðingur í notenda- og útstöðvaþjónustu á Sauðárkróki
Hefur þú þjónustulund, brennandi áhuga á tækni og átt heima á Sauðárkróki? Komdu og vertu hluti af teyminu okkar í vettvangs- og notendaþjónustu hjá viðskiptavinum Advania!
Advania leitar að jákvæðum, ábyrgum og áhugasömum einstaklingi í fjölbreytt og lifandi starf á Sauðárkróki. Starfið er samblanda af vettvangsþjónustu, notendaþjónustu og útstöðvarþjónustu.
Í vettvangsþjónustu mætir þú notandanum á staðnum og aðstoðar hann með tölvur, jaðarbúnað, fundarrými og það tækniumhverfi sem daglegt skrifstofustarf byggir á. Þess á milli sinnir þú verkefnum í notenda- og útstöðvarþjónustu Advania, þar sem unnið er með skýjalausnir, útstöðvar, símalausnir og almenn upplýsingatæknimál viðskiptavina, bæði í fjarvinnu og með heimsóknum.
Mikil áhersla er lögð á notandann sjálfan, skjóta úrlausn og að tækniumhverfi viðskiptavina sé stöðugt, öruggt og einfalt í notkun.
Starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina.
Helstu verkefni
Vettvangsþjónusta
-
Þjónusta og aðstoð við notendur á vinnustöðum viðskiptavina
-
Uppsetning, afhending og umsjón með tölvum notenda, símum og jaðarbúnaði
-
Uppsetning og umsjón með prenturum, skjáum, fundarrýmum og öðrum búnaði í skrifstofuumhverfinu
-
Úrlausn tæknilegra vandamála á staðnum og eftirfylgni mála í samstarfi við framlínu og sérfræðiteymi
-
Bilanagreining á tölvum, jaðarbúnaði, fundarrýmislausnum og tengingum, greining á orsökum vandamála og aðgerðir til að koma í veg fyrir að þau endurtaki sig
Notenda- og útstöðvarþjónusta
-
Fjaraðstoð og úrlausn mála sem berast í gegnum þjónustukerfi Advania
-
Umsjón með útstöðvum, notendum og skýjalausnum viðskiptavina, svo sem Microsoft 365
-
Aðstoð við símalausnir og almenn upplýsingatæknivandamál viðskiptavina
-
Þátttaka í verkefnum og rekstri með sérfræðiteymum notenda- og útstöðvarþjónustu
Við leitum að einstaklingi sem
-
Er tæknilega sinnaður og fljótur að tileinka sér nýja hluti
-
Þrífst í umhverfi þar sem skilvirkni og sjálfstæði eru lykilatriði
-
Er óhræddur við að vinna sjálfstætt á vettvangi en nýtur þess jafnframt að vinna í teymi með samstarfsfólki í fjarvinnu
Hæfniskröfur
-
Bílpróf, þar sem starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina
-
Framúrskarandi þjónustulund og lipurð í samskiptum við notendur á öllum stigum, með vilja til að fara fram úr væntingum viðskiptavina
-
Þekking á Windows-tölvum, Microsoft 365 og jaðarbúnaði og reynsla af uppsetningu, rekstri og úrlausn vandamála
-
Góð þekking á skrifstofuumhverfi fyrirtækja af mismunandi stærð og þeim búnaði sem þar er notaður
-
Góð færni í bilanagreiningu, skipuleg og lausnamiðuð nálgun, forvitni og þrautseigja, einnig þegar orsökin er ekki augljós
-
Sjálfstæði, frumkvæði, öguð vinnubrögð og gott skipulag og geta til að halda mörgum málum í gangi samtímis
-
Góð íslenskukunnátta
Kostur en ekki skilyrði
-
Vottun á sviði Microsoft-lausna, t.d. Modern Desktop eða Endpoint Administrator
-
Reynsla af rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja
-
Þekking á Active Directory og Microsoft Server
-
Þekking á fundarrýmislausnum, prentumhverfi og almennum netbúnaði
Við hvetjum öll kyn til að sækja um hjá okkur. Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur hvetjum við þig samt til að sækja um. Þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að.
Hjá Advania munt þú
-
Starfa með skemmtilegum hópi af fólki með áralanga reynslu í upplýsingatækni
-
Vinna að lausn vandamála
-
Hafa tækifæri til að vaxa og auka þekkingu þína
-
Starfa á vinnustað sem leggur mikið upp úr sveigjanleika hvað varðar fjarvinnu og staðvinnu
-
Vera í samskiptum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina sem gera daginn litríkan og skemmtilegan
-
Starfa hjá fyrirtæki sem er umhugað um kolefnisspor sitt, jafnrétti kynja og sjálfbærni
Icelandic
English










