dk hugbúnaður ehf.
dk hugbúnaður ehf.
dk hugbúnaður ehf.

DevOps sérfræðingur í hýsingarteymi

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum DevOps sérfræðingi til að ganga til liðs við hýsingarsvið dk hugbúnaðar. Starfið felur í sér hönnun, þróun og rekstur sjálfvirkra ferla og innviða, með það að markmiði að auka skilvirkni, stöðugleika og áreiðanleika hýsingarumhverfisins.

dk býður upp á heildarlausnir í hýsingarþjónustu og yfir 31.000 fyrirtæki eru í hýsingu hjá dk hugbúnaði. Í dag er hýsingarþjónusta dk hugbúnaðar ein sú stærsta á landinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hönnun, þróun og innleiðing sjálfvirkra ferla fyrir uppsetningu, afhendingu og rekstur kerfa
  • Uppbygging, rekstur og áframþróun innviða í hýsingar- og skýjaumhverfi
  • Þróun og viðhald CI/CD-ferla og sjálfvirknilausna
  • Vöktun, greining og umbætur á stöðugleika og afköstum kerfa
  • Innleiðing nýrra tæknilausna og stöðugar umbætur á rekstrarferlum
  • Samvinna og þekkingarmiðlun innan teymis

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í DevOps, kerfisrekstri eða þróun innviða
  • Góð reynsla af sjálfvirknivæðingu og rekstri upplýsingakerfa
  • Þekking á CI/CD, skriftun (scripting) og Infrastructure as Code
  • Þekking á skýjalausnum og rekstri innviða
  • Reynsla af Docker, Kubernetes eða sambærilegum lausnum er kostur
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að vinna með öðrum

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu tækniumhverfi
  • Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar
  • Frábæran vinnustað með metnaðarfullu starfsfólki
  • Sveigjanlegt og nútímalegt vinnuumhverfi

Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember

Frekari upplýsingar veitir Hróar Hugosson, mannauðsstjóri, [email protected]

Advertisement published16. November 2026
Application deadline26. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AWSPathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.DevOpsPathCreated with Sketch.DockerPathCreated with Sketch.System architecturePathCreated with Sketch.KubernetesPathCreated with Sketch.System integrationPathCreated with Sketch.Automation
Work environment
Professions
Job Tags