Advania
Advania
Advania

Sérfræðingur í notenda- og útstöðvarþjónustu á Vestfjörðum

Advania leitar að glaðlyndum, ábyrgum og áhugasömum einstaklingi í fjölbreytt starf. Starfið er í grunninn vettvangsþjónusta, þar sem þú mætir notandanum á staðnum og aðstoðar hann með tölvur, jaðarbúnað, fundarrými og það tækniumhverfi sem daglegt skrifstofustarf byggir á. Þess á milli sinnir þú verkefnum í notenda- og útstöðvarþjónustu Advania, þar sem unnið er með skýjalausnir, útstöðvar, símalausnir og almenn upplýsingatæknimál viðskiptavina, bæði í fjarvinnu og með heimsóknum. Mikil áhersla er lögð á notandann sjálfan, skjóta úrlausn og að tækniumhverfi viðskiptavina sé stöðugt, öruggt og einfalt í notkun.

Starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina.

Helstu verkefni

  • Vettvangsþjónusta

  • Þjónusta og aðstoð við notendur á vinnustöðum viðskiptavina

  • Uppsetning, afhending og umsjón með tölvum notenda, símum og jaðarbúnaði

  • Uppsetning og umsjón með prenturum, skjáum, fundarrýmum og öðrum búnaði í skrifstofuumhverfinu

  • Úrlausn tæknilegra vandamála á staðnum og eftirfylgni mála í samstarfi við framlínu og sérfræðiteymi

  • Bilanagreining á tölvum, jaðarbúnaði, fundarrýmislausnum og tengingum – að greina orsök vandamála og koma í veg fyrir að þau endurtaki sig

Notenda- og útstöðvarþjónusta

  • Fjaraðstoð og úrlausn mála sem berast í gegnum þjónustukerfi Advania

  • Umsjón með útstöðvum, notendum og skýjalausnum viðskiptavina, svo sem Microsoft 365

  • Aðstoð við símalausnir og almenn upplýsingatæknivandamál viðskiptavina

  • Þátttaka í verkefnum og rekstri með sérfræðiteymum notenda- og útstöðvarþjónustu

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er tæknilega sinnaður og fljótur að tileinka sér nýja hluti

  • Þrífst í umhverfi þar sem skilvirkni og sjálfstæði eru lykilatriði

  • Er óhræddur við að vinna sjálfstætt á vettvangi en nýtur þess jafnframt að vinna í teymi með
    samstarfsfólki í fjarvinnu

Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi þjónustulund og lipurð í samskiptum við notendur á öllum stigum, með vilja til að fara fram úr væntingum viðskiptavina

  • Þekking á Windows-tölvum, Microsoft 365 og jaðarbúnaði – reynsla af uppsetningu, rekstri og úrlausn vandamála

  • Góð þekking á skrifstofuumhverfi fyrirtækja af mismunandi stærð og þeim búnaði sem þar er notaður

  • Góð færni í bilanagreiningu – skipuleg og lausnamiðuð nálgun, forvitni og þrautseigja, einnig þegar orsökin er ekki augljós

  • Sjálfstæði, frumkvæði, öguð vinnubrögð og gott skipulag – geta til að halda mörgum málum í gangi samtímis

  • Góð íslenskukunnátta

  • Bílpróf, þar sem starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina

Kostur en ekki skilyrði

  • Vottun á sviði Microsoft-lausna, t.d. Modern Desktop eða Endpoint Administrator

  • Reynsla af rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja

  • Þekking á Active Directory og Microsoft Server

  • Þekking á fundarrýmislausnum, prentumhverfi og almennum netbúnaði

Við hvetjum öll kyn til að sækja um hjá okkur. Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur hvetjum við þig samt til að sækja um – þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að.

Hjá Advania munt þú

  • Starfa með skemmtilegum hóp af fólki með áralanga reynslu í IT

  • Vinna að lausn vandamála

  • Hafa tækifæri til að vaxa og auka þekkingu þína

  • Starfa á vinnustað sem leggur mikið upp úr sveigjanleika hvað varðar fjarvinnu / staðvinnu.

  • Vera í samskiptum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina sem gera daginn litríkan og skemmtilegan

  • Hafa aðgang að fjölbreyttu klúbba og félagsstarfi innan fyrirtækisins

  • Hafa aðgang að kaffihúsi Advania, glæsilegu mötuneyti og líkamsræktarstöð

  • Starfa hjá fyrirtæki sem er umhugað um kolefnisspor sitt, jafnrétti kynja og sjálfbærni

Advertisement published19. November 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Ísafjörður
Type of work
Professions
Job Tags