Origo ehf.
Origo ehf.
Origo ehf.

Kerfisstjóri í rekstrarþjónustu

Við leitum að öflugum kerfisstjóra í rekstrarþjónustu Origo sem vill taka þátt í að reka, þróa og bæta upplýsingatækniumhverfi viðskiptavina okkar. Hjá okkur starfar hópur sérfræðinga sem hefur metnað fyrir því að tryggja öryggi, stöðugleika og góðan rekstur upplýsingatæknikerfa. Ef þú hefur djúpan skilning á tækni, hefur gaman af því að finna rót vandamála, leysa þau og gera hlutina betur næst gæti þetta verið tækifæri fyrir þig!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur, vöktun og viðhald upplýsingatækniumhverfa viðskiptavina.

  • Rekstur og umsýsla Microsoft og Linux - umhverfa.

  • Umsýsla Active Directory, Microsoft Entra ID og Microsoft 365.

  • Uppsetning, rekstur og uppfærsla netþjóna og tengdra innviða.

  • Umsýsla með afritun, uppfærslur og aðra þætti sem tryggja öruggan og stöðugan rekstur.

  • Þátttaka í breytingum, innleiðingum og umbótaverkefnum hjá viðskiptavinum.

  • Skráning lausna og uppbygging rekstrarskjölunar og þekkingar.

  • Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini og samstarfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við gerum ekki ráð fyrir að einn einstaklingur kunni allt en viljum hinsvegar gjarna sjá:

  • Reynslu af kerfisstjórnun eða rekstri upplýsingatæknikerfa

  • Góða þekkingu á Microsoft-umhverfi: Windows Server, Active Directory, Entra ID og Microsoft 365

  • Áhuga og skilning á upplýsingaöryggi

  • Góða íslensku- og enskukunnáttu

  • Þjónustulund, gott skipulag og sjálfstæð vinnubrögð

Það er síðan stór plús ef þú hefur þar að auki:

  • Þekkingu á Azure og skýjaumhverfum

  • Þekkingu á Linux stýrikerfum og tengdum hugbúnaði

  • Þekkingu á sýndarumhverfum, afritunarlausnum og vöktun

  • Microsoft- eða aðrar fagvottani

Fríðindi í starfi
  • Framúrskarandi vinnuaðstaða í nýjum, glæsilegum höfuðstöðvum að Dalvegi 30A eða, eftir atvikum, í samvinnurýmum á landsbyggðinni.

  • Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi.

  • Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar.

  • Stöðug þróun þekkingar.

  • Veglegur velferðarpakki.

  • Stuðningur í kringum barneignir

  • Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum.

  • Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn.

  • Samgöngustyrkur.

  • Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur.

  • Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri.

  • Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar.

Advertisement published19. November 2026
Application deadline3. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Dalvegur 30A
Type of work
Professions
Job Tags